Leit

Leitarvél

Kynlíf

Kynlíf er eðlilegasti og fallegasti hlutur í lífi flestra. Því miður er þó fullt af röngum skilaboðum um þetta eins og margt annað. Ungt fólk veit oft ekki  hvernig á að taka á þessum skilaboðum sem dynja á þeim. Mikilvægt er að foreldrar ræði við börnin sín um þessi mál og bendi þeim á fræðslu sem er bæði rétt og aðgengileg. Ástráður samtök læknanema hafa í mörg ár verið með fræðslu til framhaldsskólanema ásamt því að halda úti heimasíðu - skoða.

Tölum saman

Verkefnið "Tölum saman" hefur farið víða í grunnskóla landsins og hjálpað foreldrum og börnum að tala saman um kynlíf. Höfundarnir ákváðu að ráðast í gerð bæklinga í kjölfar fræðslufunda um kynlíf og kynhegðun unglinga, sem þeir hafa verið með frá haustinu 2002 fyrir foreldra og nemendur í 7. – 10. bekk í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu og víðar um landið.

Fræðsluna kalla þeir: Tölum saman – samskipti foreldra og barna um kynlíf. Frekari upplýsingar veitir Guðbjörg Edda Hermannsdóttir, sími: 846 6664. Netfang: geh2@hi.is. Bæklingar frá Lýðheilsustöð - skoða

 

 

Forvarnir

 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi