Leit

Leitarvél

01. apríl 2010 13:00

Listasalur Garðabæjar - síðasti sýningardagur - Pétur Bjarnason

Sýning í Listasal Garðabæjar:

Í Listasal Garðabæjar stendur yfir sýning á 14 lágmyndum steyptum í brons eftir Pétur Bjarnason.

Pétur nam myndlist við skúlptúrdeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands og við Fachhochschule í Aachen í Þýskalandi og skúlptúr við Nationaal Hoger Instituut voor Schone Kunsten í Antwerpen, Belgíu.

Pétur hefur verið valinn til að vinna að mörgum höggmyndum sem reistar hafa verið víða. Svo sem höggmyndina "Farið" á Akureyri, höggmyndina "Við  Ægisdyr" sem stendur við Ásgarð í Garðabæ og vatnslistaverkið "Uppspretta" sem stendur við Vídalínskirkju í Garðabæ. Tvær höggmyndir gerði hann í tilefni 50 ára stjórnmálasambands Íslands og Bandaríkjannna, önnur sett upp í Reykjavík en hin Miami á Flórida.  Höggmyndirnar “Kær leikur”  á félagssvæði KR og “Fyrir stafni”  sem stendur við Sundagarða.

Vinnustofa Péturs er í Hafnarfirði en þar er hann með einu málmsteypuna á landinu sem sérhæfir sig í steypu á listaverkum með "lost wax" aðferð.

Sýningin er opin frá kl. 13 - 18 alla sýningardagana og stendur hún fram á skírdag 1. apríl.

Sjá heimasíðu listamannsins: http://peturbjarnason.com

Allir velkomnir, aðgangur er ókeypis.

Staðsetning:

Listasalur Garðabæjar er staðsettur að Garðatorgi 7.   Aðalinngangur er austan megin við Garðatorg 7 (Heilsugæslumegin) en einnig er innangengt í salinn frá innitorginu (gengið upp hringstigann, salurinn er á hæðinni fyrir ofan Bókasafn Garðabæjar).  Bílastæði eru bæði austan og vestan megin við Garðatorgið.

01. apríl 2010 20:00

Helgihald um bænadaga og páska í Garðasókn

Skírdagur – 1. apríl

Helgistund og kvöldmáltíðarsamfélag í Vídalínskirkju kl. 20.00.

Sr. Friðrik J. Hjartar þjónar. Kór Vídalínskirkju syngur. Organisti Jóhann Baldvinsson. Með þessari stund hefst dramatiskt helgihald bænadaga og páska í kirkjum safnaðarins. Altarið afskrýtt í lok stundarinnar.

Föstudagurinn langi – 2. apríl

Kl. 16.00 Helgiganga frá Bessastaðakirkju til Garðakirkju
þar sem farið er yfir píslarsögu Krists.
Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir leiðir gönguna.

Kl. 17.00 Guðsþjónusta í Garðakirkju.
Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar fyrir altari. Þorsteinn Þorsteinsson skólameistari flytur passíusálma.  Kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista. Oddný Sigurðardóttir syngur einsöng.
Boðið upp á akstur til guðsþjónustunnar frá Vídalínskirkju kl. 16:30, frá Jónshúsi kl. 16:40 og frá Hleinum kl. 16:45. Einnig er boðið upp á akstur yfir til Bessastaðakirkju að lokinni guðsþjónustu.

Páskadagur – 4. apríl

Hátíðarguðsþjónusta í Vídalínskirkju kl. 08.00.
Sr. Friðrik J. Hjartar prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Vídalínskirkju syngur. Organisti Jóhann Baldvinsson. Sungið verður hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar og flutt lagið Páskar eftir Sigurð Flosason við texta eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson.
Að lokinni athöfn verður boðið upp á morgunverð í Safnaðarheimilinu sem Lionsklúbbarnir í Garðabæ annast.

Sjá www.gardasokn.is

08. apríl 2010 19:30

Handbolti karla. Stjarnan - Fram kl. 19:30 í Mýrinni

N1 deild karla, handbolti.

Stjarnan leikur gegn Fram í íþróttamiðstöðinni Mýrinni fimmtudaginn 8. apríl kl. 19:30.

Sjá einnig heimasíðu Stjörnunnar, www.stjarnan.is og heimasíðu HSÍ, www.hsi.is.

09. apríl 2010 20:00

Spurningakeppnin Útsvar - úrslit - Garðabær - Reykjavík

Útsvar er spurningakeppni sveitarfélaganna í Sjónvarpinu. Umsjónarmenn eru sem fyrr Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir.

Garðabær keppir gegn Reykjavík í úrslitum föstudagskvöldið 9. apríl nk. kl. 20.05.

Garðbæingar eru hvattir til að mæta sjónvarpssal til að fylgjast með útsendingu og styðja við lið Garðbæinga. Áhorfendur sem vilja fylgjast með í sjónvarpssal geta mætt í sjónvarpshúsið í Efstaleiti kl. 19.40.

Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu sjónvarpsins, www.ruv.is

Úrslit 9. apríl 2010
27. þáttur Garðabær - Reykjavík

Garðabær
Elías Karl Guðmundsson
Ólöf Ýrr Atladóttir
Vilhjálmur Bjarnason 

Reykjavík
Jón Yngvi Jóhannsson
Stefán Eiríksson
Svanhildur Hólm Valsdóttir

11. apríl 2010 16:02

N1 deild kvenna, handbolti. Stjarnan - Fram kl. 16 í Mýrinni

N1 deild kvenna, handbolti, úrslitakeppni

Stjarnan leikur gegn Fram í íþróttamiðstöðinni Mýrinni sunnudaginn 11. apríl kl. 16:00.

Sjá einnig heimasíðu Stjörnunnar, www.stjarnan.is og heimasíðu HSÍ, www.hsi.is.

14. apríl 2010 16:07

Nágrannavarsla - Arnarnes og Tún

Boðað er til fundar um nágrannavörslu með íbúum á Arnarnesi og í Túnum miðvikudaginn 14. apríl kl. Fundurinn verður haldinn í Hofsstaðaskóla og hefst kl. 17.30.

16. apríl 2010 16:42

Hreinsunarátak - Hreinsað til í nærumhverfinu

Nágrannar, félagasamtök, íþróttafélög og aðrir hópar eru hvattir til að taka þátt í árlegu hreinsunarátaki og hreinsa til í nærumhverfi sínu.

Félög og hópar sem vilja taka þátt í átakinu geta sótt um styrk vegna þess og t.d. nýtt hann til að halda grillveislu að loknu góðu verki. Áður en hafist er handa er nauðsynlegt að tilkynna til þjónustumiðstöðvar um það svæði sem ætlunin er að hreinsa. Starfsmenn bæjarins munu þá hirða upp poka og annað sem til fellur eftir ruslatínslu á svæðinu.

Hægt er að hringja í Þjónustumiðstöð Garðabæjar í síma 525 8580 eða senda tölvupóst á garðyrkjustjóra í netfangið: erlabil@gardabaer.is. Sótt er um styrkina til garðyrkjustjóra.

Öllum bæjarbúum er boðið til lokahátíðar hreinsunarátaksins sem haldin verður á Garðatorgi föstudaginn 7. maí.

17. apríl 2010 17:07

Listasalur Garðabæjar - Hannes Scheving - málverkasýning

Sýning í Listasal Garðabæjar

Hannes Scheving hefur stundað málaralist síðastliðin 30  ár og haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum á þeim tíma.  Hann heldur nú yfirlitssýningu á verkum sínum í Listasal Garðabæjar. 

Flest verkin eru unnin með akrýllitum, bæði abstrakt og landslagsmyndir.

Sýningin er opin frá kl. 13 - 17 um helgar og 14-18 virka daga. Sýningin stendur fram til sunnudagsins 18. apríl.

Allir velkomnir, aðgangur er ókeypis.

Staðsetning:

Listasalur Garðabæjar er staðsettur að Garðatorgi 7, þar var áður sýningarsalur Hönnunarsafns Íslands.   Aðalinngangur er austan megin við Garðatorg 7 (Heilsugæslumegin) en einnig er innangengt í salinn frá innitorginu (gengið upp hringstigann, salurinn er á hæðinni fyrir ofan Bókasafn Garðabæjar).  Bílastæði eru bæði austan og vestan megin við Garðatorgið.

18. apríl 2010 11:00

Messa og sunnudagaskóli kl. 11 í Vídalínskirkju

Messa og sunnudagaskóli “á gleðidögum” í Vídalínskirkju kl. 11.00 sunnudaginn 18. apríl. Sr. Friðrik J. Hjartar prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Vídalínskirkju syngur. Organisti Jóhann Baldvinsson. Barn skírt og barn frá Kaupmannahöfn fermt.

Eintóm gleði hjá sunnudagaskólanum og leiðtogum hans.

Molasopi og djús eftir messu.

Sjá www.gardasokn.is 

18. apríl 2010 15:54

Dósasöfnun knattspyrnudeildar

Knattspyrnudeild Stjörnunnar verður með dósasöfnun sunnudaginn 18. apríl 2010.

Þeir sem vilja gefa knattspyrnuiðkendum dósir en verða ekki heima þann dag geta sett þær í poka fyrir utan dyrnar hjá sér.

19. apríl 2010 17:30

Listadagar barna og ungmenna 19. apr - 1. maí

Listadagar barna og ungmenna í Garðabæ eru nú haldnir í fjórða sinn. Fjölbreytt dagskrá í skólum bæjarins og víðar um bæinn.

Sjá nánar hér.

20. apríl 2010 16:22

Listadagar barna og ungmenna - tónleikar í Tónlistarskólanum

Listadagar barna og ungmenna í Garðabæ verða haldnir í fjórða sinn í lok apríl 2010.

Þriðjudaginn 20. apríl verða haldnir tónleikar kl. 17:30 í Tónlistarskóla Garðabæjar að Kirkjulundi. 

Sjá nánari dagskrá hér.

22. apríl 2010 14:00

Samsýning myndlistarmanna - BERNSKA

Dagana 22.apríl – 2.maí stendur yfir fyrsta samsýning 42 Gróskufélaga í Garðabæ. Heiti og þema sýningarinnar er BERNSKA og verður hún haldin í hinu opna rými göngugötunnar á Garðatorgi.  Sýningin opnar klukkan 14 sumardaginn fyrsta þann 22. apríl og er opin alla dagana frá klukkan 10 - 18. Allir eru hjartanlega velkomnir.

Gróska eru nýstofnuð samtök myndlistarmanna og áhugafólks um myndlist í Garðabæ og á Álftanesi. Megin tilgangur samtakanna er að efla stöðu myndlistar og stuðla að samvinnu félagsmanna. Gróska einsetur sér að standa fyrir 1-3 listviðburðum á ári, undir hugsjóninni „Myndlist er fyrir alla“, þar sem öllum félagsmönnum er frjálst að taka þátt ef þeir vilja. Þegar Gróska sýnir þá sýna saman byrjendur sem lengra komnir, lærðir sem leiknir. Við gerum litróf myndlistarinnar sýnilegt.

Sjálft hugtakið bernska hefur í ákveðnu tilliti samskonar merkingu og hugtakið gróska. Það sem er og verður, þar sem eitthvað grær,  þar er gróska og gróskan er hvað sýnilegust í bernskunni. Þar er í verki að finna loforðið um líf, loforðið sem ævinlega afneitar stöðnun og stífnun. Það þýðir að eitthvað sem þá þegar hefur gefið sig til kynna mun vaxa enn frekar fram, mun verða meira, mun verða sýnilegra, sérstaklega ef við tökum vel á móti því. Andlega markar bernska endurnýjun hugarfars, að nýrra strauma er að vænta í andlegu lífi. Hversu dásamlegt er það ekki að vera hjúpaður af gróskumikilli bernsku og leyfa sér að vera pínulítið... barnalegur.

Verið velkomin á sýninguna Bernsku í göngugötunni á Garðatorgi dagana 22. apríl – 2.maí 2010. Það er sannarlega GRÓSKA í Garðabæ.

22. apríl 2010 19:14

Hátíðarhöld sumardagsins fyrsta

Sumardagurinn fyrsti 2010

Sumardagurinn fyrsti 2010

Hátíðarhöld sumardagsins fyrsta í Garðabæ er í umsjón Skátafélagsins Vífils.

Dagskrá dagsins í PDF-skjali.

Skátamessa kl. 13

Dagurinn hefst með skátamessu í Vídalínskirkju kl. 13. Þar endurnýja skátar heit sín og ýmsar viðurkenningar eru veittar.

Frá sumardeginum fyrsta 2008

Skrúðganga kl. 14

Gengið verður í skrúðgöngu frá Vídalínskirkju að Hofsstaðaskóla. Skátaforingjar úr Vífil sjá um fánaborg og Blásarsveit Garðabæjar um undirleik.

Dagskrá við Hofsstaðaskóla

Við Hofsstaðaskóla leikur Blásarasveitin nokkur lög og að því loknu hefst fjölbreytt skemmtidagskrá.

Ingó úr Veðurguðunum syngur og spilar.

Sveppi og Villi skemmta.

22. apríl 2010 20:30

Jazzhátíð Garðabæjar - Óskar Guðjónsson, Mezzoforte og aðrir vinir

Jazzhátið Garðabæjar 22.-25. apríl 2010

Jazzhátíð Garðabæjar verður haldin dagana 22.-25. apríl nk.   Hátíðin er nú haldin í fimmta sinn. Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er Sigurður Flosason tónlistarmaður og fyrrum bæjarlistamaður Garðabæjar.

Hátíðin fer fram á þremur ólíkum tónleikastöðum: í Urðarbrunni, sal Fjölbrautaskólans í Garðabæ,  í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju og í Vídalínskirkju sjálfri.  Dagskráin skartar fjölbreyttu úrvali íslenskra listamanna á ýmsum aldri og ólíkum stíltegundum jazztónlistar.  Sem fyrr er sérstök áhersla á listamenn sem tengjast Garðabæ en listamönnum alls ótengdum Garðabæ er einnig gert hátt undir höfði.

Aðgangur er ókeypis á alla tónleika jazzhátíðarinnar, allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Hátíðin er haldin á vegum menningar- og safnanefndar Garðabæjar. Aðalstyrktaraðili hennar er Íslandsbanki í Garðabæ.

Jazzhátíð 2010- dagskrá - auglýsing

Fimmtudagur 22. apríl – Sumardagurinn fyrsti

Urðarbrunnur - Hátíðarsalur Fjölbrautaskólans í Garðabæ kl. 20.30
Stórtónleikar: Óskar Guðjónsson, Mezzoforte og aðrir vinir

Einn af bestu sonum Garðabæjar á tónlistarsviðinu leiðir stórtónleika þar sem hann kemur fyrst fram með hljómsveit sinni og bróður síns Ómars Guðjónssonar og flytur ólíka tónlist frá ferli sínum, m.a. eftir Jón Múla Árnason. Eftir hlé leikur Óskar með fyrstu útrásarvíkingum íslensks tónlistarlífs; súpergrúppunni Mezzoforte. Systir þeirra Óskars og Ómars, óperusöngkonan og kórstjórinn Ingibjörg Guðjónsdóttir kemur fram sem gestur á tónleikunum. Fjölbreyttir og spennandi tónleikar þar sem engum getur leiðst.

Stórsveit Tónlistarskóla Garðabæjar leikur í 15-20 mínútur áður en formleg dagskrá hefst. Á þessum tónleikum mætast því bæði kynslóðir,  fjölskyldur og tónlistarstílar í ófyrirsjáanlegri blöndu.

Óskar Guðjónsson: Saxófónn
Eyþór Gunnarsson: Hljómborð
Ómar Guðjónsson: Gítar
Jóhann Ásmundsson: Bassi
Gunnlaugur Briem: Trommur
Matthías Hemstock: Trommur
Þorgrímur Jónsson: Bassi
Ingibjörg Guðjónsdóttir: Söngur

Opnunaratriði:
Stórsveit Tónlistarskóla Garðabæjar
Stjórnandi: Bragi Vilhjálmsson

Föstudagur 23. apríl

Jónshús,  félags- og þjónustumiðstöð við Strikið 6 kl. 14
Cathrine Legardh og félagar - Tónleikar fyrir eldri borgara
Danska jazzsöngkonan flytur vinsæla jazzstandarda ásamt traustum íslenskum meðleikurum.

Kirkjuhvoll, safnaðarheimili Vídalínskirkju kl. 20.30
Agnar Már Magnússon – sóló píanó
Einn af fremstu jazzpíanóleikurum þjóðarinnar heldur einleikstónleika þar sem hann blandar saman jazzstandördum og eigin verkum á lifandi og fjölbreytilegan máta.  Agnar tekst hér á við eitt mest krefjandi form jazztónlistar; sóló píanóleik – nokkuð sem íslenskir jazzpíanóleikarar hafa flestir forðast.Tónleikarnir fara fram í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju, en þar  er einn af bestu konsertflyglum landsins af gerðinni Fazioli. 

Agnar Már Magnússon: Píanó

Laugardagur 24. apríl

Cathrine Legardh og félagar – danskur jazzsöngur
Ein af vinsælustu jazzsöngkonum Dana um þessar mundir sækir landið heim og leikur með nokkrum af okkar fremstu mönnum.  Cathrine Legardh flytur þekkta jazzstandarda, norræn lög og eigin verk af einstakri næmni og alúð. Hún er þekkt fyrir aðlaðandi framkomu á tónleikum og er ósjaldan líkt við hina látnu sænsku stórstjörnu Monicu Zetterlund.

Cathrine Legardh: Söngur
Sigurður Flosason: Saxófónn
Eyþór Gunnarsson: Píanó
Þorgrímur Jónsson: Kontrabassi
Einar Scheving: Trommur

Sunnudagur 25. apríl

Vídalínskirkja kl. 20.30
Lokatónleikar: Stórhátíð kóranna
Kór Vídalínskirkju og Gospelkór Jóns Vídalín ásamt gestum

Ólíkir fletir á jazzblandaðri kórtónlist koma fram á þessum fjölmennu og spennandi tónleikum í Vídalínskirkju.  Á fyrri hluta tónleikanna flytur Kór Vídalínskirkju undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar sálma frá ýmsum tímum ásamt saxófónleikaranum Sigurði Flosasyni sem mun spinna með kórnum.  Einnig verða fluttir nokkrir nýir sálmar eftir Sigurð og Aðalstein Ásberg Sigurðsson.  Á síðari hluta tónleikanna flytur Gospelkór Jóns Vídalín ásamt hljómsveit hressilega gospeltónlist undir stjórn Maríu Magnúsdóttur.

Kór Vídalínskirkju, stjórnandi: Jóhann Baldvinsson
Sigurður Flosason: Saxófónn
Gospelkór Jóns Vídalín, stjórnandi María Magnúsdóttir
Ómar Guðjónsson: Gítar
Ingólfur Magnússon: Bassa
Ingvar Alfreðsson: Hljómborð 
Brynjólfur Snorrason: Trommur

23. apríl 2010 20:30

Jazzhátíð Garðabæjar - Agnar Már Magnússon í safnaðarheimili Vídalínskirkju

Jazzhátið Garðabæjar 22.-25. apríl 2010

Jazzhátíð Garðabæjar verður haldin dagana 22.-25. apríl.   Hátíðin er nú haldin í fimmta sinn. Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er Sigurður Flosason tónlistarmaður og fyrrum bæjarlistamaður Garðabæjar.

Hátíðin fer fram á þremur ólíkum tónleikastöðum: í Urðarbrunni, sal Fjölbrautaskólans í Garðabæ,  í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju og í Vídalínskirkju sjálfri.  Dagskráin skartar fjölbreyttu úrvali íslenskra listamanna á ýmsum aldri og ólíkum stíltegundum jazztónlistar.  Sem fyrr er sérstök áhersla á listamenn sem tengjast Garðabæ en listamönnum alls ótengdum Garðabæ er einnig gert hátt undir höfði.

Aðgangur er ókeypis á alla tónleika jazzhátíðarinnar, allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Hátíðin er haldin á vegum menningar- og safnanefndar Garðabæjar. Aðalstyrktaraðili hennar er Íslandsbanki í Garðabæ.

Jazzhátíð 2010- dagskrá - auglýsing

Fimmtudagur 22. apríl – Sumardagurinn fyrsti

Urðarbrunnur - Hátíðarsalur Fjölbrautaskólans í Garðabæ kl. 20.30
Stórtónleikar: Óskar Guðjónsson, Mezzoforte og aðrir vinir
 
Föstudagur 23. apríl

Jónshús,  félags- og þjónustumiðstöð við Strikið 6 kl. 14
Cathrine Legardh og félagar - Tónleikar fyrir eldri borgara
Danska jazzsöngkonan flytur vinsæla jazzstandarda ásamt traustum íslenskum meðleikurum.

Kirkjuhvoll, safnaðarheimili Vídalínskirkju kl. 20.30
Agnar Már Magnússon – sóló píanó
Einn af fremstu jazzpíanóleikurum þjóðarinnar heldur einleikstónleika þar sem hann blandar saman jazzstandördum og eigin verkum á lifandi og fjölbreytilegan máta.  Agnar tekst hér á við eitt mest krefjandi form jazztónlistar; sóló píanóleik – nokkuð sem íslenskir jazzpíanóleikarar hafa flestir forðast.Tónleikarnir fara fram í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju, en þar  er einn af bestu konsertflyglum landsins af gerðinni Fazioli. 

Agnar Már Magnússon: Píanó

Laugardagur 24. apríl

Kirkjuhvoll, safnaðarheimili Vídalínskirkju kl. 20.30
Cathrine Legardh og félagar – danskur jazzsöngur
Ein af vinsælustu jazzsöngkonum Dana um þessar mundir sækir landið heim og leikur með nokkrum af okkar fremstu mönnum.  Cathrine Legardh flytur þekkta jazzstandarda, norræn lög og eigin verk af einstakri næmni og alúð. Hún er þekkt fyrir aðlaðandi framkomu á tónleikum og er ósjaldan líkt við hina látnu sænsku stórstjörnu Monicu Zetterlund.

Cathrine Legardh: Söngur
Sigurður Flosason: Saxófónn
Eyþór Gunnarsson: Píanó
Þorgrímur Jónsson: Kontrabassi
Einar Scheving: Trommur

Sunnudagur 25. apríl

Vídalínskirkja kl. 20.30
Lokatónleikar: Stórhátíð kóranna
Kór Vídalínskirkju og Gospelkór Jóns Vídalín ásamt gestum

Ólíkir fletir á jazzblandaðri kórtónlist koma fram á þessum fjölmennu og spennandi tónleikum í Vídalínskirkju.  Á fyrri hluta tónleikanna flytur Kór Vídalínskirkju undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar sálma frá ýmsum tímum ásamt saxófónleikaranum Sigurði Flosasyni sem mun spinna með kórnum.  Einnig verða fluttir nokkrir nýir sálmar eftir Sigurð og Aðalstein Ásberg Sigurðsson.  Á síðari hluta tónleikanna flytur Gospelkór Jóns Vídalín ásamt hljómsveit hressilega gospeltónlist undir stjórn Maríu Magnúsdóttur.

Kór Vídalínskirkju, stjórnandi: Jóhann Baldvinsson
Sigurður Flosason: Saxófónn
Gospelkór Jóns Vídalín, stjórnandi María Magnúsdóttir
Ómar Guðjónsson: Gítar
Ingólfur Magnússon: Bassa
Ingvar Alfreðsson: Hljómborð 
Brynjólfur Snorrason: Trommur

24. apríl 2010 09:21

Listadagar barna og ungmenna - 24. apr - 1. maí

Listadagar barna og ungmenna í Garðabæ eru nú haldnir í fjórða sinn. Fjölbreytt dagskrá í skólum bæjarins og víðar um bæinn.

Sjá nánar hér.

24. apríl 2010 20:30

Jazzhátíð Garðabæjar - Cathrine Legardh - kl. 20.30 í Kirkjuhvoli

Jazzhátið Garðabæjar 22.-25. apríl 2010

Jazzhátíð Garðabæjar verður haldin dagana 22.-25. apríl.   Hátíðin er nú haldin í fimmta sinn. Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er Sigurður Flosason tónlistarmaður og fyrrum bæjarlistamaður Garðabæjar.

Hátíðin fer fram á þremur ólíkum tónleikastöðum: í Urðarbrunni, sal Fjölbrautaskólans í Garðabæ,  í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju og í Vídalínskirkju sjálfri.  Dagskráin skartar fjölbreyttu úrvali íslenskra listamanna á ýmsum aldri og ólíkum stíltegundum jazztónlistar.  Sem fyrr er sérstök áhersla á listamenn sem tengjast Garðabæ en listamönnum alls ótengdum Garðabæ er einnig gert hátt undir höfði.

Aðgangur er ókeypis á alla tónleika jazzhátíðarinnar, allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Hátíðin er haldin á vegum menningar- og safnanefndar Garðabæjar. Aðalstyrktaraðili hennar er Íslandsbanki í Garðabæ.

Jazzhátíð 2010- dagskrá - auglýsing

Fimmtudagur 22. apríl – Sumardagurinn fyrsti

Urðarbrunnur - Hátíðarsalur Fjölbrautaskólans í Garðabæ kl. 20.30
Stórtónleikar: Óskar Guðjónsson, Mezzoforte og aðrir vinir
 
Föstudagur 23. apríl

Jónshús,  félags- og þjónustumiðstöð við Strikið 6 kl. 14
Cathrine Legardh og félagar - Tónleikar fyrir eldri borgara
Danska jazzsöngkonan flytur vinsæla jazzstandarda ásamt traustum íslenskum meðleikurum.

Kirkjuhvoll, safnaðarheimili Vídalínskirkju kl. 20.30
Agnar Már Magnússon – sóló píanó

Laugardagur 24. apríl

Kirkjuhvoll, safnaðarheimili Vídalínskirkju kl. 20.30
Cathrine Legardh og félagar – danskur jazzsöngur
Ein af vinsælustu jazzsöngkonum Dana um þessar mundir sækir landið heim og leikur með nokkrum af okkar fremstu mönnum.  Cathrine Legardh flytur þekkta jazzstandarda, norræn lög og eigin verk af einstakri næmni og alúð. Hún er þekkt fyrir aðlaðandi framkomu á tónleikum og er ósjaldan líkt við hina látnu sænsku stórstjörnu Monicu Zetterlund.

Cathrine Legardh: Söngur
Sigurður Flosason: Saxófónn
Eyþór Gunnarsson: Píanó
Þorgrímur Jónsson: Kontrabassi
Einar Scheving: Trommur

Sunnudagur 25. apríl

Vídalínskirkja kl. 20.30
Lokatónleikar: Stórhátíð kóranna
Kór Vídalínskirkju og Gospelkór Jóns Vídalín ásamt gestum

Ólíkir fletir á jazzblandaðri kórtónlist koma fram á þessum fjölmennu og spennandi tónleikum í Vídalínskirkju.  Á fyrri hluta tónleikanna flytur Kór Vídalínskirkju undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar sálma frá ýmsum tímum ásamt saxófónleikaranum Sigurði Flosasyni sem mun spinna með kórnum.  Einnig verða fluttir nokkrir nýir sálmar eftir Sigurð og Aðalstein Ásberg Sigurðsson.  Á síðari hluta tónleikanna flytur Gospelkór Jóns Vídalín ásamt hljómsveit hressilega gospeltónlist undir stjórn Maríu Magnúsdóttur.

Kór Vídalínskirkju, stjórnandi: Jóhann Baldvinsson
Sigurður Flosason: Saxófónn
Gospelkór Jóns Vídalín, stjórnandi María Magnúsdóttir
Ómar Guðjónsson: Gítar
Ingólfur Magnússon: Bassa
Ingvar Alfreðsson: Hljómborð 
Brynjólfur Snorrason: Trommur

25. apríl 2010 20:30

Jazzhátíð Garðabæjar - stórhátíð kóranna - kl. 20.30 í Vídalínskirkju

Jazzhátið Garðabæjar 22.-25. apríl 2010

Jazzhátíð Garðabæjar verður haldin dagana 22.-25. apríl.   Hátíðin er nú haldin í fimmta sinn. Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er Sigurður Flosason tónlistarmaður og fyrrum bæjarlistamaður Garðabæjar.

Hátíðin fer fram á þremur ólíkum tónleikastöðum: í Urðarbrunni, sal Fjölbrautaskólans í Garðabæ,  í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju og í Vídalínskirkju sjálfri.  Dagskráin skartar fjölbreyttu úrvali íslenskra listamanna á ýmsum aldri og ólíkum stíltegundum jazztónlistar.  Sem fyrr er sérstök áhersla á listamenn sem tengjast Garðabæ en listamönnum alls ótengdum Garðabæ er einnig gert hátt undir höfði.

Aðgangur er ókeypis á alla tónleika jazzhátíðarinnar, allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Hátíðin er haldin á vegum menningar- og safnanefndar Garðabæjar. Aðalstyrktaraðili hennar er Íslandsbanki í Garðabæ.

Jazzhátíð 2010- dagskrá - auglýsing

Fimmtudagur 22. apríl – Sumardagurinn fyrsti

Urðarbrunnur - Hátíðarsalur Fjölbrautaskólans í Garðabæ kl. 20.30
Stórtónleikar: Óskar Guðjónsson, Mezzoforte og aðrir vinir
 
Föstudagur 23. apríl

Jónshús,  félags- og þjónustumiðstöð við Strikið 6 kl. 14
Cathrine Legardh og félagar - Tónleikar fyrir eldri borgara

Kirkjuhvoll, safnaðarheimili Vídalínskirkju kl. 20.30
Agnar Már Magnússon – sóló píanó

Laugardagur 24. apríl

Kirkjuhvoll, safnaðarheimili Vídalínskirkju kl. 20.30
Cathrine Legardh og félagar – danskur jazzsöngur

Sunnudagur 25. apríl
Vídalínskirkja kl. 20.30
Lokatónleikar: Stórhátíð kóranna
Kór Vídalínskirkju og Gospelkór Jóns Vídalín ásamt gestum

Ólíkir fletir á jazzblandaðri kórtónlist koma fram á þessum fjölmennu og spennandi tónleikum í Vídalínskirkju.  Á fyrri hluta tónleikanna flytur Kór Vídalínskirkju undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar sálma frá ýmsum tímum ásamt saxófónleikaranum Sigurði Flosasyni sem mun spinna með kórnum.  Einnig verða fluttir nokkrir nýir sálmar eftir Sigurð og Aðalstein Ásberg Sigurðsson.  Á síðari hluta tónleikanna flytur Gospelkór Jóns Vídalín ásamt hljómsveit hressilega gospeltónlist undir stjórn Maríu Magnúsdóttur.

Kór Vídalínskirkju, stjórnandi: Jóhann Baldvinsson
Sigurður Flosason: Saxófónn
Gospelkór Jóns Vídalín, stjórnandi María Magnúsdóttir
Ómar Guðjónsson: Gítar
Ingólfur Magnússon: Bassa
Ingvar Alfreðsson: Hljómborð 
Brynjólfur Snorrason: Trommur

30. apríl 2010 13:20

Sumarsýning Grósku í göngugötunni á Garðatorgi

LIST og LYST á Garðatorgi 1. og 2.mai

Gróska, samtök myndlistarmanna, býður gestum upp á kaffi og meðlæti á vægu verði, bæði laugardag og sunnudag frá kl. 14-17 í göngugötunni á Garðatorgi.

Dagana 22.apríl – 2.maí stendur yfir fyrsta samsýning 42 Gróskufélaga í Garðabæ. Heiti og þema sýningarinnar er BERNSKA og er haldin í hinu opna rými göngugötunnar á Garðatorgi.   Allir eru hjartanlega velkomnir.

Gróska eru nýstofnuð samtök myndlistarmanna og áhugafólks um myndlist í Garðabæ og á Álftanesi. Megin tilgangur samtakanna er að efla stöðu myndlistar og stuðla að samvinnu félagsmanna. Gróska einsetur sér að standa fyrir 1-3 listviðburðum á ári, undir hugsjóninni „Myndlist er fyrir alla“, þar sem öllum félagsmönnum er frjálst að taka þátt ef þeir vilja. Þegar Gróska sýnir þá sýna saman byrjendur sem lengra komnir, lærðir sem leiknir. Við gerum litróf myndlistarinnar sýnilegt.

Sjálft hugtakið bernska hefur í ákveðnu tilliti samskonar merkingu og hugtakið gróska. Það sem er og verður, þar sem eitthvað grær,  þar er gróska og gróskan er hvað sýnilegust í bernskunni. Þar er í verki að finna loforðið um líf, loforðið sem ævinlega afneitar stöðnun og stífnun. Það þýðir að eitthvað sem þá þegar hefur gefið sig til kynna mun vaxa enn frekar fram, mun verða meira, mun verða sýnilegra, sérstaklega ef við tökum vel á móti því. Andlega markar bernska endurnýjun hugarfars, að nýrra strauma er að vænta í andlegu lífi. Hversu dásamlegt er það ekki að vera hjúpaður af gróskumikilli bernsku og leyfa sér að vera pínulítið... barnalegur.

Verið velkomin á sýninguna Bernsku í göngugötunni á Garðatorgi dagana 22. apríl – 2.maí 2010. Það er sannarlega GRÓSKA í Garðabæ.

Aukaval

Tungumál

Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi