Jazzhátið Garðabæjar
Jazzhátíð Garðabæjar hefur verið haldin árlega frá árinu 2006. Hátíðin er haldin á vegum menningar- og safnanefndar Garðabæjar. Listrænn stjórnarni hátíðarinnar frá upphafi er Sigurður Flosason tónlistarmaður og fyrrum bæjarlistamaður Garðabæjar.
Á jazzhátíðunum hefur verið boðið upp á fjölbreytta dagskrá með mörgum af bestu jazztónlistarmönnum landsins. Aðgangur að hátíðinni er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Aðalstyrktaraðili hátíðarinnar er Íslandsbanki í Garðabæ.
Jazzhátíð Garðabæjar verður haldin í sjöunda sinn vorið 2012 dagana 17.-19. maí. Smellið á logóið fyrir neðan til að sjá dagskrá.
Jazzhátíð Garðabæjar 2008 (í vinnslu)
Jazzhátið Garðabæjar 2007 (í vinnslu)
Jazzhátíð Garðabæjar 2006 (í vinnslu)