Leit

Leitarvél

Reglur um starfsstyrki til listamanna í Garðabæ

1. gr.
Bæjarstjórn Garðabæjar veitir árlega starfsstyrk til listamanns eða listamanna eftir því sem nánar er ákveðið hverju sinni við gerð fjárhagsáætlunar.


2. gr.
Menningarmálanefnd Garðabæjar skal gera tillögu til bæjarstjórnar um veitingu starfsstyrkja til listamanns eða listamanna, og skal við það miðað, að tillögur berist bæjarstjórn í maímánuði ár hvert.


3. gr.
Menningarmálanefnd skal auglýsa eftir umsóknum eða óska eftir rökstuddum ábendingum frá einstaklingum eða samtökum listamanna í Garðabæ um úthlutun starfsstyrkja.  Nefndin er þó ekki bundin af slíkum ábendingum.


4. gr.
Þeir listamenn einir koma til greina við úthlutun styrkja, sem lögheimili eiga í Garðabæ og hafa haft þar fasta búsetu í a.m.k. tólf mánuði.


5. gr.
Úthlutun starfsstyrks skal að jafnaði fara fram í júnímánuði ár hvert.


6. gr.
Starfsstyrkur skal nema þeirri fjárhæð, sem bæjarstjórn ákveður hverju sinni við gerð fjárhagsáætlunar.


7. gr.
Bæjarstjórn áskilur sér rétt til þess að styrkþegi leggi fram greinargerð um ráðstöfun starfsstyrkjar, verði eftir því leitað.  Greinargerðin getur verið í því formi, að styrkþegi leggi fram texta í rituðu máli eða flytji eða lesi upp verk í frumflutningi eða til frumbirtingar, allt eftir nánara samkomulagi við menningarmálanefnd hverju sinni.  Ekki skal gert ráð fyrir sérstakri greiðslu fyrir framlagningu eða flutning samkvæmt grein þessari, en styrkþegi heldur höfunarrétti sínum óskertum í samræmi við ákvæði laga um höfundarrétt.

Reglur þessar voru samþykktar á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar þann 1. júlí 1999

 
 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi