Listasalur Garðabæjar er lítill sýningarsalur staðsettur að Garðatorgi 7 (á hæðinni fyrir ofan Bókasafn Garðabæjar).
Sýningar 2009-2010
Yfirstandandi sýning - Allir velkomnir, ókeypis aðgangur.
Sýningarpláss
Búið er að úthluta sýningarplássi í Listasal Garðabæjar fram til júlí 2010.
Auglýsing um úthlutun sýningarhalds frá ágúst 2010 til og með desember 2010 (umsóknarfrestur er til og með 8. apríl nk).
Nánari upplýsingar veitir:
Hulda Hauksdóttir upplýsingafulltrúi
s. 525 8500 / 525 8527
netfang: hulda@gardabaer.is
STARFSREGLUR
LISTASALUR GARÐABÆJAR
1. Í listasal Garðabæjar að Garðatorgi 7 skal stuðla að fjölbreyttum listsýningum, s.s. myndlistarsýningum.
2. Menningar- og safnanefnd Garðabæjar hefur umsjón með umsóknum um sýningahald salarins. Auglýst skal eftir umsóknum amk einu sinni á ári og stefnt að því að hafa sýningar í samfellu allt árið.
3. Útlán til listsýninga/menningarviðburða skal vera gjaldfrjáls en listamenn sjá sjálfir um yfirsetu og annan tilfallandi kostnað.
4. Salinn má einnig nota til annarra félags- og menningarstarfa en listsýninga en innheimta má sérstakt gjald ef það krefst útkalls starfsmanns/húsvarðar.
5. Listamenn bera einir ábyrgð á uppsetningu sýninga en sérstakar leiðbeiningar um uppsetningu verka fylgja með samningi um útlán/útleigu salarins.
6. Sýningar í salnum yfir árið verða kynntar á heimasíðu Garðabæjar og í rafrænu fréttabréfi Garðabæjar en listamenn/sýnendur bera að öðru leyti ábyrgð á kynningu og auglýsingum. Listasalur Garðabæjar getur aðstoðað með uppsetningu sýningarskrár á einföldu formi merktu listasalnum en að öðru leyti er slíkt á kostnað og ábyrgð sýnanda. Dæmi um sýningaskrá fylgir með samningi.
7. Sækja verður um sýningahald á sérstökum eyðublöðum sem verða aðgengileg á heimasíðu Garðabæjar. Hver og ein umsókn verður metin með tilliti til þess hvort tiltekinn viðburður eigi erindi í salinn. Umsóknir verða einnig metnar eftir menntun og reynslu listamanns, hvort viðkomandi sé í fagfélagi listamanna og hvort viðkomandi hafi áður fengið úthlutað sýningartíma.
8. Starfsreglur skulu endurskoðaðar árlega.