Álagning gjalda árið 2012
1. Útsvar
Álagningargjaldstig útsvars á tekjur manna á árinu 2012 er 13,66%
2. Fasteignagjöld
Bæjarstjórn Garðabæjar hefur samþykkt eftirfarandi reglur við álagningu fasteignagjalda á árinu 2012:
| Íbúðarhúsnæði | Atvinnuhúsn. og aðrar fasteignir | |
|---|---|---|
| Fasteignaskattur |
0,26% af fasteignamati íbúða og íbúðarhúsa ásamt lóðarrétt. |
1,65% af fasteignamati |
| Lóðarleiga | 0,4% af fasteignamati lóðar | 1,0% af fasteignamati lóðar |
| Sorphirðugjald | 17.500 kr. á íbúð | |
| Vatnsgjald | 0,11% af fasteignamati húsa og lóðarréttinda |
0,11% af fasteignamati húsa og lóðarréttinda |
| Holræsa- og rotþróargjöld |
0,12% af fasteignamati húsa ásamt lóðarréttindum | 0,12% af fasteignamati húsa ásamt lóðarréttindum |
| Taðþróargjald | 225.700 kr. á hvert hesthús |
Afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega
Hjá einstaklingum með tekjur árið 2010 allt að kr. 4.000.000 er 100% niðurfelling á fasteignaskatti og holræsagjaldi. Afslátturinn lækkar um 1% við hækkun tekna um hverjar 3.000 krónur og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 4.300.000.
Hjá hjónum með tekjur árið 2010 allt að kr. 5.200.000 er 100% niðurfelling á fasteignaskatti og holræsagjaldi. Afslátturinn lækkar um 1% við hækkun tekna um hverjar 12.000 krónur og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 6.400.000.
Ekki þarf að sækja um lækkunina.
Gjalddagar fasteignagjalda árið 2012 eru 15. janúar, 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst, 15. september og 15. október.
Guðjón Erling Friðriksson
bæjarritari