Kynferðismál
Kynferðismál eru málaflokkur sem er mikilvægur fyrir alla. Sérstaklega getur verið erfitt að vera unglingur og vita hvað er rétt og rangt í þessum málum. Skilaboð koma alls staðar frá um hvernig þú eigir að líta út, hvernig þér eigi að líða og hvað þú átt að gera.
Mjög mikilvægt er að foreldrar ræði við börnin sín um kynferðisleg málefni tímanlega. Mikilvægi þess að börn fái fræðslu frá sínu nánasta umhverfi er sífellt að verða meira þegar "röng" skilaboð koma hvaðanæva að; frá netinu, úr kvikmyndum, myndböndum o.s.frv.