Fræðslu- og menningarsvið
Fræðslu- og menningarsvið nær yfir málefni daggæslu, leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, íþróttamál, æskulýðs- og tómstundamál unglinga og aldraðra, menningarmál, og vinnuskóla.
Heildstæð skólastefna fyrir Garðabæ
Forstöðumaður er Margrét Björk Svavarsdóttir
netfang: margretsv@gardabaer.is
Sálfræðingar hafa aðsetur á bæjarskrifstofum en eru líka með viðtalstíma í leik- og grunnskólum. Sálfræðingar vinna að forvarnastarfi í samvinnu við starfsmenn skóla meðal annars með kennslufræðilegum og sálfræðilegum athugunum og greiningu á nemendum sem eiga í erfiðleikum sem hafa áhrif á nám þeirra.
Deildarstjóri skóladeildar hefur eftirlit með framkvæmd skólastarfs í grunnskólum og tónlistarskóla.
Leikskólafulltrúi hefur eftirlit með framkvæmd skólastarfs í leikskóla.
Talmeinafræðingar hafa aðsetur á bæjarskrifstofum. Þeir sinna greiningu vegna málþroskaraskana og framburðarerfiðleika barna í leik- og grunnskólum og veita foreldrum og starfsfólki skólanna ráðgjöf.
Sérkennslufulltrúi leikskóla hefur aðsetur á bæjarskrifstofunum. Hann hefur yfirumsjón með sérkennslu í leikskólunum í Garðabæ og annast faglega ráðgjöf til starfsfólks og foreldra barna í öllum leikskólunum. Sérkennslufulltrúi sinnir frumgreiningu á frávikum leikskólabarna.