Leit

Leitarvél

Leikskólar í Garðabæ

Í Garðabæ eru 10 leikskólar:

Ásar
Bæjarból
Hæðarból 
Kirkjuból
Kjarrið
Litlu-Ásar
Lundaból 
Sjáland 
Sunnuhvoll

Í Garðabæ er einnig Barnaskóli Hjallastefnunnar sem tekur á móti 5 ára börnum síðasta veturinn í leikskóla.

Ólíkt rekstrarform

Leikskólar reknir af Garðabæ:

Garðabær rekur leikskólana Bæjarból, Hæðarból, Kirkjuból, Lundaból og Sunnuhvol.

Þrír einkareknir leikskólar í bænum starfa samkvæmt þjónustusamningi við Garðabæ:

Leikskólinn Ásar er rekinn af Hjallastefnunni samkvæmt samningi við Garðabæ. 
Litlu-Ásar er leikskóli fyrir börn á aldrinum 9-24 mánaða. Hann er rekinn af Hjallastefnunni samkvæmt samningi við Garðabæ.
Leikskólinn Sjáland er einnig rekinn af einkaaðila samkvæmt samningi við Garðabæ.

Sjálfstætt starfandi skólar:

Kjarrið, lítill einkarekinn skóli.
Leikskóladeild Barnaskóla Hjallastefnunnar
Fimm ára deild Alþjóðaskólans

Sjálfstætt starfandi skólar geta sótt um starfsleyfi skv. reglum Garðabæjar um veitingu starfsleyfis fyrir einkarekna leikskóla.

Ársskýrslur leikskóla

Ársskýrsla leikskóla skólaárið 2008-2009 (PDF-skjal)

Ársskýrsla leikskóla Garðabæjar skólaárið 2007-2008 (PDF-skjal)

Ársskýrsla leikskóla Garðabæjar skólaárið 2006-2007 (PDF-skjal)

Ársskýrsla leikskóla Garðabæjar skólaárið 2005-2006 (PDF-skjal)

Ársskýrsla leikskóla Garðabæjar skólaárið 2004-2005 (PDF-skjal)

Innra starf

Leikskólar eru fyrsta skólastig barna. Daglegt starf þeirra er miðað við þroska og getu hvers einstaklings. Dagskipulag er misjafnt eftir leikskólum og fer það meðal annars eftir aldri barnanna og samsetningu hópsins.

Unnið er á ýmsan hátt í skipulögðum og frjálsum leikjum, með lestri bóka, frásögnum og samtölum, myndsköpun, tónlist, hreyfingum, leikrænni tjáningu, söng og vettvangsferðum.

Í niðurstöðum foreldrakannana hefur komið fram mikil ánægja foreldra leikskólabarna með starf leikskólanna.

Ef af foreldrar óska eftir flutningi á milli leikskóla þarf að skila inn beiðni um flutning, sjá eyðublöð.

Sérfræðiþjónusta

Starfsemi leikskóla heyrir undir fræðslu- og menningarsvið. Þar starfar leikskólafulltrúi og sérfræðingar sem veita leikskólakennurum og foreldrum ráðgjöf.

Innritun

Umsóknareyðublað um leikskólavist er á vef Garðabæjar.  Ath. Garðbæingar geta einnig nálgast umsóknareyðublað á Mínum Garðabæ og sparað sér innslátt að hluta.

Leikskóladvöl er úthlutað eftir aldri barna. Öll börn sem eru orðin 18 mánaða þegar skólaárið hefst, 1. september ár hvert, eiga kost á leikskóladvöl.

Innritunarreglur

Þegar barn hefur fengið leikskóladvöl er gerður samningur við foreldra um dvölina

Upplýsingarit um leikskólana, Velkomin í leikskóla, er fáanlegt á bæjarskrifstofu og eru þar ýmsar leiðbeiningar til foreldra.

Gjöld

Gjöld ákvarðast í samræmi við lengd dvalartíma.

Gjaldskrá leikskóla er aðgengileg hér.

Reglur um greiðslur vegna dvalar barna á leikskólum sem ekki eru reknir af Garðabæ.

Reglur um greiðslur til forráðamanna barna á biðlista eftir leikskólavist.

Systkinaafsláttur

Ef fleiri en eitt barn eru í dvöl á leikskóla, í tómstundaheimili eða hjá dagforeldrum eiga foreldrar rétt á systkinaafslætti fyrir eldra/elsta barnið. Foreldrar sem eiga tvö börn fá 50% afslátt af grunngjaldi annars barnsins og þeir sem eiga þrjú börn fá 75% afslátt af grunngjaldi þriðja barnsins. Afsláttur er veittur af grunngjaldi, fullt verð er greitt fyrir fæði.  Umsóknareyðublað um systkinafslátt.
 

 

Leikskólar

Skólastarf í Garðabæ

Í Garðabæ er heildstæð skólastefna sem nær til leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla. Skólarnir eru hvattir til að efla sérstöðu sina og foreldrar bera ábyrgð á að velja skóla fyrir barn sitt.
 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi