Lestrarstefna Garðabæjar
Lestrarkunnátta er lykill að andans auði þjóðarinnar, og jafnframt gjörir hún menn færa að rétta þennan auð að öðrum. En hann er í því ólíkur öllum öðrum auðæfum, að hann eyðist ekki, þótt af honum sé tekið. Hann er líkur loganum, sem brennur jafnskært, þótt þúsundir komi og tendri ljós sín við hann. Sá sem er vel læs nýtur efnisins eins, þótt hann lesi hátt fyrir aðra. Hann þiggur og gefur og á meira eftir en áður.
Guðmundur Finnbogason, 1903.