Viðbrögð á höfuðborgarsvæðinu við eldgosi í Eyjafjallajökli
Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins og sveitarfélögin á svæðinu eru vel undirbúin og vinna samkvæmt viðbragðsáætlun, ef svo færi að öskufall næði alla leið til höfuðborgarsvæðisins. Taldar eru hverfandi líkur á því.
Sveitarfélögin og almannavarnanefndin leggja áherslu á að með því að virkja viðbragðsáætlanir sé ekki verið að spá því að öskufall verði, heldur er tilgangur þess að stofnanir sveitarfélaganna verði vel í stakk búnar til þess að upplýsa og aðstoða almenning á svæðinu ef til þess kemur.
Samræmd viðbragðsáætlun
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu búa svo vel að eiga vandaða, samræmda viðbragðsáætlun, sem unnin var í haust vegna viðbúnaðar við heimsfaraldri inflúensu. Búið er að virkja innviði sveitarfélaganna og aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins í takt við þá áætlun. Viðbragðsaðilar og viðeigandi stofnanir á svæðinu eru meðvitaðar um stöðu mála og fylgjast grannt með breytingum sem kunna að verða með veru sinni í Samhæfingarstöð almannavarna. Tryggt verður að allar starfseiningar sveitarfélaganna fái ítarlegar upplýsingar verði öskufall á svæðinu.
Sveitarfélögin hafa einnig virkjað þá aðila hjá sér sem fylgjast með loftgæðum allan sólarhringinn í gegnum fimm mælistöðvar á höfuðborgarsvæðinu. Ennfremur fylgist eftirlitið vel með vatnsbólum, en talið er ólíklegt að neysluvatn spillist þótt aska berist yfir svæðið. Sérstaklega er fylgst með gangi mála í skólum og leikskólum og upplýsingar um viðbrögð þeirra vegna öskufalls er að finna á heimasíðum viðkomandi skóla og sveitarfélags.
Forsendur þær sem þyrftu að vera til staðar til þess að öskufall yrði á höfuðborgarsvæðinu eru:
- Gosið þarf að vera öskugos.
- Mökkurinn þarf að vera a.m.k. 4 – 5 km. hár.
- Veðurhæð þarf að vera talsverð, þ.e. sæmilega hvasst.
- Veður þarf að vera þurrt.
- Vindátt þarf að vera austanstæð.
Samkvæmt upplýsingum veðurstofunnar fylgir úrkoma yfirleitt austanáttum á höfuðborgarsvæðinu. Einnig er vert að hafa í huga að gosið hefur nú breyst úr öskugosi í hraungos, gosmökkurinn nær ekki tveggja km hæð, en ekki er útilokað að öskusprengingar eigi eftir að eflast aftur. Höfuðborgarsvæðið er í rúmlega 120 km fjarlægð frá gosstöðvunum. Sambærileg vegalengd í austur nær austur fyrir Núpsdal, að Skeiðarárjökli. Ekki hefur orðið vart öskufalls á þeim slóðum frá gosinu. Veðurstofa Íslands telur hverfandi líkur á að öskufall verði á höfuðborgarsvæðinu, í hið minnsta á næstunni.
Engin ástæða er fyrir íbúa á höfuðborgarsvæðinu að grípa til sérstakra ráðstafana, svo sem að bera öndunargrímur utandyra, nema ef um öskufall verði að ræða. Þeir sem eru með viðkvæm öndunarfæri, astma eða lungnasjúkdóma eru þar í sérstökum áhættuhópi. Fínasti hlutinn af öskunni er í formi svifryks sem sveitarfélögin fylgjast sérstaklega með í mælingum sínum á loftgæðum eins og áður hefur komið fram. Ef þær mælingar gefa til kynna að hætta sé á ferð verða umsvifalaust sendar út tilkynningar til almennings í gegnum fjölmiðla.
Allir viðbragðsaðilar og stofnanir á svæðinu eru meðvitaðir um stöðu mála og fylgjast grannt með breytingum. Mikilvægt er að íbúar höfuðborgarsvæðisins treysti því og haldi ró sinni.
Íbúar eru jafnframt hvattir til fylgjast vel með fréttum og kynna sér upplýsingar og leiðbeiningar á heimasíðu Almannavarna, www.almannavarnir.is og heimasíðu landlæknisembættisins, www.landlaeknir.is
Frétt af vef SHS, www.shs.is