Leit

Leitarvél

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík
sími: 528 3000, netfang: shs@shs.is
veffang: www.shs.is

Þjónustusvæði Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins er allt höfuðborgarsvæðið.

Stöðvar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins eru fjórar og eru þær mannaðar allan sólarhringinn

  • í Skógarhlíð,
  • á Tunguhálsi
  • á Reykjavíkurflugvelli og
  • í Skútahrauni í Hafnarfirði.

Helstu hlutverk Slökkviliðsins eru:

  • Að annast bruna- og eldvarnir
  • að annast sjúkraflutninga á svæðinu
  • að bregðast við mengunaróhöppum
  • viðbúnaður vegna almannavarna.

Meðal annarra verkefna liðsins má nefna verðmætabjörgun, sjóköfun, björgun utan alfaraleiða og tilfallandi aðstoð við almenning.

Tilgangur SHS er:

  • Að vinna að forvörnum
  • að veita fyrstu viðbrögð til að vernda líf, heilsu fólks, umhverfi og eignir.

Starfsfólk SHS er í viðbragðsstöðu allan sólarhringinn á slökkvistöðvunum í Skógarhlíð, á Tunguhálsii og á Reykjavíkurflugvelli.


Stjórn SHS skipa sveitarstjórar sveitarfélaganna sjö sem standa að þessu öflugasta björgunarliði landsins. Sveitarfélögin eru Reykjavík, Garðabær, Kópavogur, Hafnarfjörður, Álftanes, Seltjarnarnes og Mosfellsbær.

 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi