Leit

Leitarvél

Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis

Garðatorgi 7
sími: 550 5400,
fax: 550 5409.
Heimasíða: www.heilbrigdiseftirlit.is  

Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis sinnir eftirliti í Bessastaðahreppi, Garðabæ Hafnarfirði og Kópavogi.

Heilbrigðiseftirlitið starfar samkæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Starfssvið heilbrigðiseftirlits er meðal annars:
  • eftirlit með dreifingu og sölu matvæla
  • almennt umhverfiseftirlit
  • eftirlit með með framkvæmd mengunarvarna
  • eftirlit með hreinlætisbúnaði og -aðstöðu í opinberum byggingum og öðrum fyrirtækjum sem veita almenningi þjónustu
  • hundaskráning og -eftirlit

Viðtalstímar starfsmanna eru mánudaga til föstudaga kl. 9-10 eða eftir samkomulagi.
Framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits er Guðmundur Einarsson.

Íbúar eru hvattir til að hafa samband við Heilbrigðiseftirlitið ef þeir telja tilefni til kvartana, til dæmis vegna skemmdra matvæla í verslunum, sóðaskapar utanhúss eða annarra atriða sem falla undir verksvið eftirlitsins.

Hundahald
Þeir sem þess óska geta haldið hunda að uppfylltum ýmsum skilyrðum, meðal annars um heilbrigði dýranna og umgengni. Hundaeigendum ber að sjá til þess að dýrin valdi öðrum ekki ónæði og Heilbrigðiseftirlitið fylgir eftir ábendingum sem berast um að ekki sé staðið við sett skilyrði.

 

Skólastarf í Garðabæ

Í Garðabæ er heildstæð skólastefna sem nær til leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla. Skólarnir eru hvattir til að efla sérstöðu sina og foreldrar bera ábyrgð á að velja skóla fyrir barn sitt.
 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi