Húsnæðismál
Upplýsingar um húsnæðismál veitir:
Edda Tryggvadóttir, húsnæðisfulltrúi,
sími: 525 8564,
netfang: edda@gardabaer.is.
Húsaleigubætur
Húsaleigubætur eru samkvæmt lögum ætlaðar til að lækka húsnæðiskostnað tekjulágra leigjenda. Rétt til húsaleigubóta eiga þeir sem leigja íbúðarhúsnæði til búsetu og eiga þar lögheimili. Samkvæmt reglugerð gilda ýmsar takmarkanir um bótarétt og má þar nefna að
- viðkomandi húsnæði þarf að uppfylla ákveðin lágmarksskilyrði
- leigusamningur þarf að vera þinglýstur og
- leigusamningur þarf að gilda til sex mánaða eða lengri tíma.
Umsóknir um bætur skulu berast bæjarskrifstofu á eyðublöðum sem þar fást 15 dögum fyrir fyrsta dag greiðslumánaðar. Sækja þarf um bætur fyrir hvert almanaksár og gildir umsókn til ársloka.
Upplýsingar um húsaleigubætur
Húsaleigubætur, bæklingur Félagsmálaráðuneytis, 11. útgáfa 2008, fæst á bæjarskrifstofum. Bæklingurinn er einnig á vef ráðuneytisins.
Lög um húsaleigubætur nr. 138/1997.
Lög um breytingar á lögum um húsaleigubætur, nr. 168/2002
Reglugerð um húsaleigubætur, nr. 118/2003.
Skylt efni:
Íbúðir fyrir aldraða
Námsmannaíbúðir
Leiguíbúðir