Hvatapeningar fyrir börn og unglinga í Garðabæ
Hvatapeningar ársins 2012 eru 25.000 krónur á barn. Öll börn á aldrinum 5-18 ára fá nú hvatapening, þ.e. börn fædd á árunum 1994-2007.
Hvatapeningana er hægt að nýta til að lækka kostnað við skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf sem nær yfir 10 vikur að lágmarki.
Ungmenni í tveimur elstu árgöngunum, þ.e. þau sem eru fædd 1994 og 1995 geta fengið hvatapeninga greidda vegna kaupa á korti í líkamsræktarstöð.
Úthlutun peninganna fer fram á íbúavef Garðabæjar, Mínum Garðabæ.
Leiðbeiningar um notkun hvatapeninga.
Á íbúavefnum Mínum Garðabæ er hægt að ráðstafa hvatapeningum beint inn á greiðsluseðla frá félögum í Garðabæ. Þeir sem stunda íþróttir eða tómstundir hjá öðrum félögum eða hafa þegar greitt æfingagjöld hjá félögum í Garðabæ þurfa að koma með kvittun í þjónustuver Garðabæjar ásamt því að sækja um hvatapeninginn inni á íbúavefnum Mínum Garðabæ. Á kvittuninni þarf að koma fram nafn og kennitala barns, æfingatímabil og hvaða íþrótt/tómstundir viðkomandi er að æfa.
Athugið að hvatapeningar fyrnast alltaf um áramót. Hvatapeninga ársins 2012 er hægt að nýta vegna reikninga sem eru gefnir út á árinu 2011 og 2012.
Nánari upplýsingar veitir þjónustuver Garðabæjar í síma 525 8500 eða í netfangi gardabaer@gardabaer.is