Menningar- og safnanefnd
Menningar- og safnanefnd hefur umsjón með menningarsjóði Garðabæjar.
Fjármunum hans er ráðstafað meðal annars til kaupa á listaverkum, til að efla tónlist og leiklist í bænum, til kynningar á bókmenntum og myndlist og til annarrar menningarstarfsemi í Garðabæ.
Nefndina skipa:
- Jóna Sæmundsdóttir formaður
- Þorgerður Anna Arnardóttir
- Hrafnkell Pálmarsson
- Elín Ólafsdóttir
- Helgi Pétursson
Upplýsingar veitir:
Hulda Hauksdóttir upplýsingafulltrúi
sími: 525 8500
netfang: hulda@gardabaer.is
Bæjarbúar eru hvattir til að koma hugmyndum um menningarviðburði í Garðabæ á framfæri við menningar- og safnanefnd.
Menningar- og safnanefnd fundar að jafnaði einu sinni í mánuði.
Úthlutun styrkja til menningarmála
Eftirfarandi vinnureglur menningar- og safnanefndar eru til viðmiðunar fyrir úthlutun styrkja til menningarmála:
- Umsóknir um styrki til menningarmála eru að jafnaði teknar fyrir og afgreiddar
tvisvar á ári. - Listamenn eða menningarviðburðir skulu tengjast Garðabæ. Að jafnaði eru ekki
eru veittir ferðastyrkir. - Í umsókninni þarf að skilgreina verkefnið og kostnaðaráætlun skal fylgja með.
- Tilgreina þarf ósk um styrkupphæð.
- Menningar- og safnanefnd áskilur sér rétt til að krefjast endurgreiðslu
styrkja ef breyting verður á verkefninu sem fær styrk. - Mælst er til að umsækjendur kynni afraksturinn fyrir menningar- og safnanefnd
og/eða bæjarbúum.
Tekið er við umsóknum allt árið.
Vinnureglurnar voru samþykktar á 16. fundi nefndarinnar haustið 2003.