Leit

Leitarvél

Starfsstyrkir til listamanna

Menningarsjóður Garðabæjar hefur frá árinu 1992 veitt starfsstyrki til listamanna. Menningar- og safnanefnd gerir tillögur til bæjarstjórnar um úthlutun og koma aðeins til greina þeir listamenn sem búsettir eru í Garðabæ.

Auglýsing um starfsstyrkinn fyrir árið 2010.

Hér má skoða reglur um starfsstyrki til listamanna sem voru samþykktar 1. júlí 1999.

Laufey Jensdóttir myndlistarmaður er bæjarlistamaður Garðabæjar árið 2009. 


 
Afhending starfsstyrks til listamanns fór fram 17. júní 2009.
Frá vinstri: Gunnar Einarsson bæjarstjóri, Laufey Jensdóttir bæjarlistamaður Garðabæjar 2009, Páll Hilmarsson, forseti bæjarstjórnar.

Bæjarlistamenn Garðabæjar hafa verið:

2008    Jóhann Sigurðarsson, leikari

2007    Karl Ágúst Úlfsson, leikari, leikstjóri og rithöfundur

2006    Rúnar Helgi Vignisson rithöfundur og þýðandi

2005    Sigurður Flosason tónlistarmaður

2004    Þuríður Sigurðardóttir myndlistarmaður og söngkona

2003    Erling Jóhannesson, leikari og leikstjóri og Hallfríður Ólafsdóttir flautu- og pikkólóleikari

2002    Björn Thoroddsen tónlistarmaður

2001    Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur

2000    Jónína Magnúsdóttir myndlistarmaður og Peter Tompkins tónlistarmaður

1999    Margrét Ólafsdóttir leikari og Steindór Hjörleifsson leikari

1998    Árni Elfar tónlistar- og myndlistarmaður

1997    Ármann Helgason tónlistarmaður og Guðrún E. Ólafsdóttir myndlistarmaður

1996    Arngunnur Ýr Gylfadóttir myndlistarmaður og Guðfinna Dóra Ólafsdóttir kórstjóri

1995    Hildigunnur Halldórsdóttir tónlistarmaður og Sigrún Waage leikari

1994    Edda Jónsdóttir myndlistarmaður og Ragnheiður Jónsdóttir myndlistarmaður

1993    Sigríður Sigurjónsdóttir listhönnuður

1992    Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari og Pétur Bjarnason myndlistarmaður


 

 

Menning


 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi