Vífilsstaðir 100 ára
Haldið var upp á 100 ára afmæli Vífilsstaða helgina 4. og 5. september 2010.
Ávarp Gunnars Einarssonar bæjarstjóra á afmælishátíðinni
Blað um Vífilsstaði sem gefið var út í tilefni afmælisins (ath. um 50 MB)
Aðalbyggingin á Vífilsstöðum var tekin í notkun árið 1910 og var þá eitt stærsta hús landsins. Spítalann teiknaði Rögnvaldur Ólafsson sem hefur verið kallaður fyrsti arkitekt landsins en hann var einnig byggingarmeistari þess.
Sérstakt samfélag
Berklar voru afar skæður sjúkdómur hér á landi á fyrri hluta 20. aldarinnar og þá voru engin lyf til við þeim. Sjúkdómurinn lagðist þungt á ungt fólk og því var mikið af ungu fólki samankomið á Vífilsstöðum þar sem það var einangrað frá umheiminum jafnvel árum saman. Á Vífilsstöðum varð því til sérstakt samfélag þar sem gleði og sorg héldust í hendur.
Mörg framfaramál urðu að veruleika á Vífilsstöðum, t.d. i búskaparháttum þar sem brautryðjandastarf var unnið við ræktun og rekið myndarlegt kúabú. Sjúklingar stóðu einnig fyrir fjölbreyttu skemmti- og menningarlífi og á Vífilsstöðum var m.a. rekin fyrsta einkarekna útvarpsstöð landsins. Saga Vífilsstaða er því afar merkileg fyrir margra hluta sakir.
Fallegt umhverfi Vífilsstaða lék stórt hlutverk í því samfélagi sem þar myndaðist. Vinsælt var að fara út á bát á vatninu og þeir sjúklingar sem voru rólfærir gistu gjarnan í tjöldum í hraunbollum á sumrin og er enn hægt að sjá mynjar um tjaldbúðir þar.
Gunnar Einarsson bæjarstjóri ávarpaði gesti afmælishátíðarinnar og fór þá í stuttu máli yfir sögu Vífilsstaða. Ávarpið er hægt að nálgast hér ofar á síðunni.
Gamlar myndir frá Vífilsstöðum sem voru á sögusýningunni 4. og 5. sept. 2010.