Leit

Leitarvél

Útilistaverk í Garðabæ 

Táknatréð

Táknatréð við Jónasartorg

Táknatréð, við Urriðaholtsstræti. Höfundar: Gabríela Friðriksdóttir, Mathias Augustyniak og Michael Amzalag. Afhjúpað 19. maí 2008. 

Bjargfesta


Bjargfesta, við Skólabraut. Höfundur Sigurður Guðmundsson. Afhjúpað 26. september 1997. Höfundur nafns Ásta Lind Hannesdóttir, nemandi í Hofsstaðaskóla.

Hönnun



Hönnun, milli Silfurtúns og Hafnarfjarðarvegar. Höfundur Magnús Tómasson. Afhjúpað 2001. Verkið var keypt eftir samsýningu listamanna í tilefni af 25 ára afmæli Garðabæjar.

Í mótun

Í mótun, á Garðatorgi. Höfundur Sigrún Guðmundsdóttir. Afhjúpað 20. nóvember 1988 (við Sveinatungu). Efni sedrusviður. Gefandi Kvenfélag Garðabæjar.

Landslag



Landslag, við gatnamót Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegar. Afhjúpað 1997. Höfundur Brynhildur Þorgeirsdóttir.

Samspil



Samspil, í Búðakinn við Reykjanesbraut. Höfundur Pétur Bjarnason. Afhjúpað 1998. Gefendur eru Héðins-fyrirtækin (Héðinn-Smiðja hf, Héðinn-verslun hf og Garðastál hf) í tilefni af 75 ára afmæli þeirra.

Serenada


,,Serenada" (kvöldljóð), milli Silfurtúns og Hafnarfjarðarvegar. Höfundur Helgi Gíslason. Afhjúpað 2001. Verkið var keypt eftir samsýningu listamanna í tilefni af 25 ára afmæli Garðabæjar.

Uppsprettan

Uppsprettan, við Vídalínskirkju. Höfundur Pétur Bjarnason. Afhjúpað 1995. Efni brons.

Við Ægisdyr



Við Ægisdyr, vestan við Garðaskóla. Höfundur Pétur Bjarnason. Afhjúpað 1993. Efni kortin-stál.

Þrenning



Þrenning, við Garðaskóla. Höfundur Sigurjón Ólafsson 1970. Afhjúpað 25. maí 1990. Erlingur Jónsson stækkaði verkið.

 

Wegener-stöpullinn

Steinstöpull á Arnarneshæðinni reistur vorið 1930.  Steinstöpullinn er reistur af þýska veðurfræðingnum Alfred Wegener (1880-1930) í aprílmánuði árið 1930. Stöpullinn var reistur ásamt fleiri stöplum með það fyrir augum að færa sönnur á landrekskenninguna sem Wegener setti fram á árunum 1908-1912. 
Árið 2000 var steinstöpullinn endurgerður og umhverfið í kring gert meira aðlaðandi.

 

Menning


 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi