Leit

Leitarvél

Vinabæir

Vinabæir

Vinabæir Garðabæjar eru:

Rudersdal (vinabærinn Birkerød hefur nú sameinast Søllerød) í Danmörku
Asker í Noregi
Eslöv í Svíþjóð og
Jakobstad í Finnlandi
Vinabæir eru sveitarfélög á Norðurlöndum og stundum víðar, eitt frá hverju landi, sem stofnað hafa til samskipta um ýmis málefni.

Markmið vinabæjarsamstarfsins eru:
  • að miðla reynslu á sem flestum sviðum
  • styrkja menningartengsl
  • koma á skiptum milli félaga, skóla og vinnuhópa
  • stuðla að vináttu einstaklinga í hverju landi og
  • efla þannig þekkingu þjóðanna hverrar á annarri.

Vinabæjamót eru haldin annað hvert ár og hafa tekið þátt í þeim allt að 500 fulltrúar. Garðabær hóf vinabæjasamstarf árið 1966 og voru fulltrúar frá bænum í fyrsta sinn á vinabæjamóti í Birkerød í Danmörku árið 1968.  Á vinabæjamótin koma fulltrúar frá bæjarfélögunum og einnig frá norrænu félögunum ásamt almenningi. Undanfarin ár hefur einnig verið lögð áhersla á sérstaka dagskrá fyrir börn og ungmenni. Síðast var haldið vinabæjamót í Garðabæ sumarið 2002.

Næsta vinabæjamót verður haldið í Rudersdal í Danmörku árið 2010. Nánari upplýsingar um mótið verða settar hér inn þegar nær dregur. Að þessu sinni er búið að breyta umfangi mótsins og er það með öðru sniði en áður.  Dagskrá mótsins verður miðuð við þátttöku bæjarfulltrúa og embættismanna en einnig er fyrirhugað ungmennamót fyrstu helgina í júlí 2010.

Norrænu félögin í vinabæjunum ætla að halda mót í júní árið 2010.  Nánari upplýsingar verða settar hér inn þegar nær dregur.

 

Upplýsingar um vinabæjasamstarf veitir:

Hulda Hauksdóttir upplýsingafulltrúi
sími: 525 8527/ 525 8500
netfang: hulda@gardabaer.is

Einnig má hafa samband við Norræna félagið í Garðabæ sem veitir upplýsingar um vinabæjasamstarf og annað norrænt samstarf.

Formaður er Katrín Káradóttir
netfang: katrin.karadottir@simnet.is
sími: 517 4740

 

Menning


 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi