Leit

Leitarvél

Garðyrkjudeild Garðabæjar

Forstöðumaður: Erla Bil Bjarnardóttir garðyrkjustjóri
sími 565 8532 og 525 8588,
netfang: erlabil@gardabaer.is

Hlutverk Garðyrkjudeildar:

  • Sér um uppbyggingu, hirðingu og viðhald opinna svæða og stofnanalóða.
  • Sér um uppbyggingu, hirðingu og viðhald sparkvalla, körfuboltavalla og hjólabrettasvæða.
  • Sér vinnuskóla fyrir verkefnum og sér um umsjón og rekstur skólagarða, sem eru starfræktir frá 1. júní og út ágúst.
  • Hefur umsjón með leigu garðlanda til almennings, sem starfræktir eru frá maí til sept. Garðarnir eru leigðir út tættir. Garðleiga greiðist á skrifstofu þjónustumiðstöðvar og garðyrkju að Lyngási 18 í apríl til maí ár hvert.
  • Aðstoðar grunnskóla Garðabæjar við verkefni í umhverfisfræðslu um Garðabæ og við skógrækt nemenda.
  • Ráðgjöf til íbúa er veitt hvað varðar hirðingu gróðurs á lóðum.
  • Garðyrkjustjóri hefur einnig umsjón með Vífilsstaðavatni fyrir hönd umhverfisnefndar.
  • Garðyrkjustjóri er starfsmaður umhverfisnefndar, tekur við erindum til nefndarinnar og veitir upplýsingar um umhverfis- og náttúruverndarmál í Garðabæ
  • Vistvernd í verki

Garðyrkjudeild hefur umsjón með verkefninu Vistvernd í verki.

Sjá nánar um verkefnið hér og á heimasíðu Landverndar, www.landvernd.is.


 

 

Umhverfismál


 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi