Garðlönd og matjurtagarðar sumarið 2010
Garðbæingum gefst kostur á að leigja garða til ræktunar matjurta á þrem stöðum sumarið 2010.
Leiga á garði kostar 2.600 krónur og er gjaldið það sama á öllum stöðunum.
Garðlönd við Álftanesveg
Við Álftanesveg eru garðlönd sem eru aðallega nýtt til kartöfluræktunar. Stærð hvers reits er10 x 10 m eða 100 m2. Útleiga fer fram frá afgreiðslu Þjónustumiðstöðvar Lyngási 18. Þar er hægt að velja garð og greiða fyrir leiguna eða fá sendan heim greiðsluseðil.
Athugið að ekki er vatn til vöknunar á staðnum.
Garðlöndin verða tilbúin til útleigu um 10. maí nk. Leigjendur þurfa að vera búsettir í Garðabæ.
Matjurtagarðar í Hæðarhverfi
Í Hæðarhverfi eru fjölskyldugarðar til ræktunar matjurta. Aðkoma að görðunum er sunnan leikskólans Hæðarbóls. Stærðir reitanna eru 2,5 x 5m eða 5 x 5 m. Góð aðstaða er í görðunum með snyrtingu og garðverkfærum sem hægt er að fá lánuð. Leiðbeinandi verður á staðnum eftir hádegi virka daga til aðstoðar þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í ræktun matjurta.
Vatn er til vökvunar á staðnum.
Skráning fer fram í Þjónustumiðstöð Lyngási 18 eða á staðnum eftir hádegi. Gjaldið er greitt á staðnum eða sendur heim greiðsluseðill.
Fjölskyldugarðarnir verða opnaðir seinni partinn í maí, eftir að jarðvinnslu er lokið.
Skólagarðar í Silfurtúni
Skólagarðar eru í Silfurtúni og er aðkoma að þeim við leikskólann Bæjarból. Skólagarðarnir eru fyrir börn á aldrinum 6 - 13 ára. Tveir leiðbeinendur verða á staðnum börnum til aðstoðar.
Skráning í skólagarða fer fram á staðnum frá 2. júní. Garðarnir eru opnir á virkum dögum kl. 8-16 og er þar góð aðstaða til dvalar og leikja.
Eftir skráningu og val barnsins á garði, verður forráðamanni sendur greiðsluseðill fyrir skólagjaldi sem er efnisgjald.
Nánari upplýsingar veitir:
Erla Bil Bjarnardóttir garðyrkjustjóri,
netfang: erlabil@gardabaer.is