Leit

Leitarvél

Aðalskipulag Garðabæjar 2004-2016

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti tillögu að aðalskipulagi Garðabæjar 2004-2016 á fundi sínum 16. mars 2006. Aðalskipulagið var staðfest af umhverfisráðherra Jónínu Bjartmarz þann 12. júlí 2006 og tók gildi við birtingu auglýsingar um staðfestingu þann 26. júlí 2006 (nr: 646). 

Ráðgjafi við endurskoðun aðalskipulagsins var Einar Ingimarsson arkitekt og hafði Bergljót Einarsdóttir þáverandi skipulagsfulltrúi umsjón með gerð þess í samvinnu við skipulagsnefnd bæjarins undir forystu Laufeyjar Jóhannsdóttur þáverandi formanns skipulagsnefndar.

Fyrri aðalskipulagsáætlanir voru í gildi fyrir tímabilin 1985-2005 og 1995-2015.

Aðalskipulag Garðabæjar 2004-2016 gerir ráð fyrir mikilli uppbyggingu í Garðabæ á næstu árum og áratugum, sem er í samræmi við svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins.

Fjöldi íbúa í Garðabæ við samþykkt aðalskipulagsins var ríflega 9000. Í aðalskipulaginu er gert ráð fyrir að á næstu árum verði byggðar allt að 360 íbúðir á ári sem þýðir að íbúum getur fjölgað um 1.100 á ári. Lögð er áhersla á fjölbreytta byggð og góð tengsl við náttúruna.

Uppfært aðalskipulag mars 2010

Aðalskipulag Garðabæjar 2004-2016 með áorðnum breytingum

Samkvæmt skipulags-og byggingarlögum skal endurskoða aðalskipulagsáætlanir á minnst 12 ára tímabili. Aðalskipulag Garðabæjar fyrir tímabilið 2004-2016 var staðfest af umhverfisráðherra þann 12. júlí 2006. Þá hafði verið unnið að endurskoðun aðalskipulagsins frá árinu 2002 en það var endanlega samþykkt i bæjarstjórn Garðabæjar þann 16. mars 2006.

Síðan að aðalskipulagið var staðfest árið 2006 hafa verið gerðar á því fimm breytingar og er sú sjötta langt komin. Eftir sveitarstjórnarkosningar í vor verður það hlutverk nýrrar bæjarstjórnar að taka afstöðu til þess hvort endurskoða skuli aðalskipulagið en ljóst er að sú niðurstaða þarf að liggja fyrir á næsta kjörtímabili sem lýkur árið 2014.

Hér birtist Aðalskipulag Garðabæjar 2004-2016 uppfært með áorðnum breytingum. Aðalskipulagið samanstendur af sveitarfélagsuppdrætti sem sýnir alla lögsögu Garðabæjar, þéttbýlisuppdrætti sem sýnir hinn byggða hluta sveitarfélagsins og greinargerð þar sem skipulagstillagan og forsendur hennar eru settar fram í texta og myndefni.

Þeir sem óska eftir frekari upplýsingum um aðalskipulagið geta leitað til Arinbjarnar Vilhjálmssonar, skipulagsstjóra og byggingarfulltrúa, netfang: arinbjorn@gardabaer.is

Gögn aðalskipulags Garðabæjar uppfærð mars 2010

Aðalskipulag Garðabæjar 2004-2016, yfirlit breytinga 2006-2009

Aðalskipulag Garðabæjar 2004 2016, greinargerð uppfærð mars 2010

Aðalskipulag Garðabæjar 2004-2016, þéttbýlisuppdráttur uppfærður mars 2010

Aðalskipulag Garðabæjar 2004-2016, sveitarfélagsuppdráttur uppfærður mars 2010

Gatnakort af Garðabæ

Umhverfisuppdráttur

 

 

 

 

Skipulags- og byggingarmál


 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi