28.04.2010
Starfsstyrkur til listamanns
Starfsstyrkur til listamanna í Garðabæ
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar auglýsir eftir umsóknum um starfsstyrk listamanns árið 2010. Einnig auglýsir nefndin eftir rökstuddum ábendingum frá einstaklingum, samtökum listamanna eða annarra um hver/hverjir skulu hljóta starfsstyrk.
Sjá einnig reglur um úthlutun starfsstyrk hér á heimasíðunni.
Nánari upplýsingar um bæjarlistamenn Garðabæjar.
Umsóknareyðublöð eru rafræn og hægt er að nálgast þau á íbúavefnum Mínum Garðabæ. Til að fá lykilorð að Mínum Garðabæ er farið á innskráningarsíðu hér.
Umsóknarfrestur er til og með fimmtudagsins 6. maí 2010 (ath búið að framlengja um nokkra daga).
Rökstuddar ábendingar með tillögu um hver skuli hljóta starfsstyrk má senda á netfangið hulda@gardabaer.is.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
Nánari upplýsingar veitir Hulda Hauksdóttir upplýsingafulltrúi
s. 525 8500/ 525 8527 og netfang: hulda@gardabaer.is