Leit

Leitarvél

23.04.2010

Breytingar á deiliskipulagi


Auglýsing um deiliskipulagsbreytingar í Garðabæ


Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með eftirfarandi deiliskipulagsbreytingar skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br.


1. Tillaga að breytingu deiliskipulags Ása (Hraunsholts vestra)


Tillagan gerir ráð fyrir þremur farsímasendum á sérútbúnum ljósastaurum við hringtorgið þar sem Hraunsholtsbraut og Vífilsstaðavegur mætast við jaðar Gálgahrauns.
Tillagan gerir ráð fyrir ljósastaurum sem eru um 10 m að hæð eða álíka háir og aðrir ljósastaurar við Hraunsholtsbraut og Vífilsstaðaveg. Þeir verða málaðir í dökkum jarðlit og er ætlað að falla vel að hrauninu vestan vegarins.

2. Tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness, Tjaldanes 17

Tillagan gerir ráð fyrir stækkun lóðar um 282 m2 til norðurs og færslu göngustígs sem stækkun nemur. Opið svæði á hæðinni minnkar sem nemur stækkun lóðar. Einnig er gert ráð fyrir stækkun byggingarreits sem rúmi viðbyggingu við húsgafl sem er 104 m2 að grunnfleti.

Tillögurnar liggja frammi á bæjarskrifstofum Garðabæjar, Garðatorgi 7, frá 25. apríl til og með 7. júní 2010. Þær eru ennfremur aðgengilegar hér á vef Garðabæjar www.gardabaer.is . Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Frestur til þess að skila inn athugasemdum rennur út mánudaginn 7.júní 2010. Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Garðabæjar og skulu þær vera skriflegar og undirritaðar. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar fyrir tilskilinn frest teljast samþykkir þeim.


Arinbjörn Vilhjálmsson
skipulagsstjóri Garðabæjar

Ásar gsm-sendar við hringtorg, teikning 1

Ásar gsm-sendar við hringtorg, teikning 2

Tjaldanes 17, tillaga að deiliskipulagsbreytingu.


 
 
 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi