Fréttir og tilkynningar
Fréttir11.06.2026Sögugöngur í Garðabæ í tilefni 50 ára afmælis
Í tilefni af 50 ára afmæli Garðabæjar er boðið upp á fjórar áhugaverðar sögugöngur um Garðabæ.
Fréttir11.06.2026Öll grunnskólabörn í Garðabæ fengið sólmyrkvagleraugu
Nú hafa öll grunnskólabörn í Garðabæ fengið sólmyrkvagleraugu afhent frá Garðabæ.
Fréttir10.06.2026Kvöldtónleikar í Tónlistarskóla Garðabæjar þann 17. júní
Hljómsveitin L‘amour fou kemur fram í sal Tónlistarskóla Garðabæjar klukkan 20:00 17. júní.
Fréttir08.06.2026Íþróttakennarar í Sjálandsskóla hlutu viðurkenningu
Íþróttakennarar í Sjálandsskóla hlutu viðurkenningu frá Háskólanum í Reykjavík fyrir framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum. Horft var til þróunarverkefnisins Hjólað á skólatíma en það verkefni hlaut styrk úr Þróunarsjóði Garðabæjar. Verkefnið snýr m.a. að því að efla markvisst hjólafærni nemenda.
Fréttir05.06.2026Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar Garðabæjar
Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar Garðabæjar var haldinn 4. júní 2026.
Fréttir04.06.2026Langar þig að halda götugrill?
Í tilefni þess að Garðabær fagnar 50 ára afmæli á árinu er bæjarbúum boðið að sækja um úthlutun úr sérstökum hverfa- og götupotti til að halda götupartí í sumar með sínum nágrönnum.
Tilkynningar04.06.2026Framkvæmdir á Suðurnesvegi 5. júní
Uppfært 6. júní: frmakvæmdum hefur verið frestað.
Fréttir03.06.2026Endurbætur á stígum meðfram Hafnarfjarðarvegi halda áfram
Framkvæmdir á stígum meðfram Hafnarfjarðarvegi halda áfram. Nú er komið að kaflanum frá Laufási yfir að Álftanesvegi.
Tilkynningar03.06.2026Lokun á Vífilsstaðavegi frá 5. - 7. júní
Lokun verður sett upp á Vífilsstaðavegi, frá Kirkjulundi að Karlabraut, vegna viðhaldsvinnu á hraðahindrunum.
Fréttir02.06.2026Afhentu Alzheimersamtökunum 3.205.201 króna styrk
Alls söfnuðust 3.205.201 krónur á Jazzþorpinu í Garðabæ sem fram fór helgina 30. apríl – 3. maí. Það eru Alzheimersamtökin sem njóta góðs af sölunni og fá til sín óskerta sölu á húsgögnum og gripum frá Góða hirðinum en einnig lögðu Húsgagnahöllin, Tekk og Ikea verkefninu lið.
Fréttir01.06.2026Opið lengur í sundi á sunnudögum
Frá 1. júní til 30. september verða Ásgarðslaug og Álftaneslaug opnar lengur á sunnudögum, eða til klukkan 22:00 í stað 18:00.
Fréttir01.06.202617. júní í Garðabæ
Boðið verður upp á skemmtilega dagskrá fyrir alla fjölskylduna á Garðatorgi á 17. júní. Svona lítur dagskráin út.
Tilkynningar29.05.2026Malbikun á Eyktarhæð 1. júní
Næstkomandi mánudag, 1.júní, mun Loftorka vinna að malbikun á Eyktarhæð, frá Hæðarbraut að Jökulhæð og Kögunarhæð, ef veður leyfir.
Tilkynningar29.05.2026Kaldavatnslaust við Norðurnesveg og nágrenni
Vegna viðgerðar er kaldavatnslaust við Norðurnesveg og nágrenni miðvikudaginn 3. júní 09:30 - 15:00.
Fréttir29.05.2026Jónmundur Grétarsson leikari er bæjarlistamaður Garðabæjar 2026
Bæjarlistamaður Garðabæjar 2026 var útnefndur við hátíðlega athöfn í Sveinatungu á Garðatorgi þann 28. maí. Bæjarlistamaðurinn er leikarinn Jónmundur Grétarsson. Við sama tilefni var arkitektinn Sigurður Hallgrímsson heiðraður fyrir ómetanlegt framlag til byggingarlistar.