Leit

Leitarvél
08.12.2008

Arnarnesvegur - stofnbraut


Auglýsing um skipulag í Kópavogi og Garðabæ.
Arnarnesvegur. Lagning stofnbrautar frá Reykjanesbraut að Fífuhvammsvegi. Deiliskipulag.

Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga, auglýsist hér með tillaga að deiliskipulagi fyrir hluta Arnarnesvegar frá Reykjanesbraut að Fífuhvammsvegi. Megin tilgangur fyrirhugaðrara framkvæmdar er að leggja stofnbraut sem  tengir  jaðarsvæði í Reykjavík, Kópavogi og Garðabæ við megin umferðaræðar höfuðborgarsvæðisins Breiðholtsbraut og Reykjanesbraut. Þessi hlutur Arnarnesvegar er um 1,7 km langur og er veghelgunarsvæði hans 30 metrar frá miðlínu vegarins.

Gert er ráð fyrir að hljóðvörnum verði komið fyrir innan skipulagssvæðisins. Safnbrautir á fyrirhuguðu íbúðarsvæði í Hnoðraholti í Garðabæ og á fyrirhuguðu verslunar-, þjónustu- og íbúðarsvæði í Glaðheimum í Kópavogi munu tengjast veginum á ljósastýrðum T- gatnamótum. Lindarvegur mun jafnframt tengjast þessum nýja hluta Arnarnesvegarins til suðurs með T-gatnamótum. Alls er gert ráð fyrir 4 gatnamótum innan skipulagssvæðisins.

Aðalstígur liggur innan skipulagsvæðis meðfram Arnarnesvegi að norðan og þverar hann í undirgöngum á 4 stöðum. Fyrirvari er gerður um nákvæmni og útfærslu þverana sem geta breyst á hönnunarstigi. Arnarnesvegur frá Reykjanesbraut að Breiðholtsbraut verður byggður í þremur áföngum og nær tillagan til hluta 2. og 3. áfanga heildarframkvæmdar skv. mati á umhverfisáhrifum Arnarnesvegar (411) dags. febrúar 2003.

Með tillögunni fylgir umhverfisskýrsla frá verkfræðistofunni VSO dags. í október 2008. Deiliskipulagstillagan byggir á Aðalskipulagi Kópavogs 2000 – 2012, staðfest 23. apríl 2002 m.s.br. og breytingu dags. í október 2008 sem er til afgreiðslu hjá Skipulagsstofnun. Deiliskipulagið er í samræmi við Aðalskipulag Garðabæjar 2004 – 2016 m.s.br.

Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1: 2000  og 1:5000 dags. 12. ágúst 2008. Nánar vísast til kynningargagna.

Tillagan verður til sýnis á Bæjarskipulagi Kópavogs, Fannborg 6, 2. hæð frá kl. 8:30 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum frá 8:30 til 15:00 frá 2.desember 2008 til 6.janúar 2009. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is.
Tillagan verður til sýnis í þjónustuveri Garðabæjar,Garðatorgi 7, 1.hæð frá kl. 08.00 til 16.00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum frá 8:00 til 14:00 frá frá 2.desember 2008 til 6.janúar 2009. Einnig má sjá tillöguna hér á heimasíðu Garðabæjar.


Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist skriflega Bæjarskipulagi Kópavogs eða þjónustuveri Garðabæjar eigi síðar en kl. 15:00 þriðjudaginn 23. desember 2008. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.

Skipulagsstjóri Garðabæjar.
Skipulagsstjóri Kópavogs.

Fylgigögn:

Arnarnesvegur - Reykjanesbraut - Fífuhvammsvegur - tillaga að deiliskipulagi (pdf-skjal)
Umhverfisskýrsla, október 2008 (pdf-skjal).

 
 
 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi