Leit

Leitarvél
17.04.2009

Álftanesvegur

Að tillögu skipulagnefndar samþykkti bæjarstjórn Garðabæjar á fundi sínum þann 5. mars 2009 framkvæmdaleyfi fyrir lagningu stofnbrautarinnar Álftanesvegar frá Hafnarfjarðarvegi í Engidal að bæjarmörkum við sveitarfélagið Álftanes, alls 3,8 km sbr. umsókn Vegagerðarinnar dags. 27.janúar 2009.

Vegagerðinni er veitt leyfi fyrir lagningu stofnbrautarinnar á grundvelli framlagðrar tillögu sem er í samræmi við Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2001-2024 m.s.br. og Aðalskipulag Garðabæjar 2004-2016 m.s.br. Veitt leyfi er einnig í samræmi við niðurstöðu mats á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar árið 2002.

Framkvæmdaleyfið var gefið út af undirrituðum 7.apríl 2009.

Samþykkt eru framlögð gögn:

* Hér eru teikningar úr 3. hefti í skjali sem er minna og léttara.

Auk þess sérstök yfirlýsing Vegagerðarinnar á því hvernig öryggi gangandi skuli framfylgt á meðan á framkvæmdum stendur dags. 1.apríl 2009.

Verkið felst í því að leggja nýja 3,8 km langa stofnbraut fyrir akandi umferð frá Hafnarfjarðarvegi í Engidal að sveitarfélagsmörkum við Álftanes. Brautin verður með einni akrein í hvora átt.

Brautin mun lögð í nýju vegstæði um Garðahraun austan og norðan við nýju byggðina í Garðahrauni, norðan við Garðastekk og um norðanvert Garðaholt þar sem hún verður í legu núverandi Álftanesvegar að bæjarmörkum við Álftanes.

Byggð verður svokölluð Garðabrú við aðkomu að Ásahverfi og Garðahraunshverfi í Engidal sem verður hluti af mislægum gatnamótum ásamt aðreinum og frá fráreinum. Byggð verða tvenn göng fyrir gangandi umferð; Garðastekks- og Garðaholtsgöng. Legu strengja, vatns-og hitaveitulagna verður breytt. Þá verða lagðir nýjir háspennu-og rafdreifistrengir og nýjar síma-, vatns-,og hitaveitulagnir. Einnig fylgir verkinu landmótun, sáning og yfirborðsjöfnun hrauns innan verksvæðisins.

Þeir sem vilja afla sér frekari upplýsingar um framkvæmdina geta leitað til skipulagsstjóra Garðabæjar. Sérstakur kynningarfundur verður haldinn á næstunni þar sem skipulagsyfirvöld og Vegagerðin munu kynna framkvæmdir við lagningu brautarinnar, framgang þeirra og umfang. Boðað verður til fundarins með auglýsingu í fjölmiðlum og verður hann öllum opinn.

Telji þeir sem hagsmuna eiga að gæta, rétti sínum hallað með niðurstöðu bæjarstjórnar um framkvæmdaleyfisumsókn, er viðkomandi heimilt að skjóta málinu til úrskurðarnefndar skipulags-og byggingarmála. Kærufrestur er einn mánuður frá því kæranda var kunnugt, eða mátti vera kunnugt um samþykkt sveitarstjórnar.

Garðabæ 7. apríl 2009

Arinbjörn Vilhjálmsson
skipulagsstjóri Garðabæjar

 
 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi