Smalaholt, aðal- skipulagsbreyting
Smalaholt, skógræktarsvæði.
Í tillögunni felst eftirfarandi:
• Lega útivistarstíga breytist og útsýnisstíg er bætt við á efstu brún Smalaholts að vestanverðu.
Lega útivistarstíganna er í samræmi við hugmyndir Skógræktarfélags Garðabæjar um lagningu stíga um skógræktarsvæðið í Smalaholti.
Markmiðið með breytingunni með er að bæta aðgengi manna að skógræktarsvæðinu til útivistar og vernda svæðið með því að beina umferð manna eftir ákveðnum leiðum.
Tillagan liggur frammi á bæjarskrifstofum Garðabæjar, Garðatorgi 7, frá 29. maí til og með 19. júní 2009. Hún er ennfremur aðgengileg hér á vef Garðabæjar.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 19. júní 2009. Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Garðabæjar og skulu þær vera skriflegar og undirritaðar. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar fyrir tilskilinn frest teljast samþykkir þeim.
Arinbjörn Vilhjálmsson
skipulagsstjóri Garðabæjar
Uppdráttur