Leit

Leitarvél
04.06.2009

Ókeypis námskeið fyrir börn

MANNÚÐ OG MENNING

Garðabæjardeild Rauða kross Íslands býður upp á ókeypis námskeið í sumar fyrir börn á aldrinum 10-12 ára. Námskeiðið er haldið að Hrísmóum 4, Garðatorgi í Garðabæ.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á fræðslu og leiki í tengslum við hugsjónir Rauða krossins um mannúð og óhlutdrægni. Þátttakendur fræðast um Rauða kross starf, skyndihjálp, mismunandi menningarheima og umhverfið.

Meðal efnis á námskeiðinu er: undirstöðuatriði skyndihjálpar, umhverfismál, skapandi leikir, saga og starf Rauða krossins, fjölmenningarlegt samfélag og uppskeruhátíð.

Námskeiðið er haldið 10-14. ágúst frá kl. 09 - 16.

Sjá nánari upplýsingar um námskeiðið hér á heimasíðu Garðabæjar.

Upplýsingar um önnur sumarnámskeið í sumar í Garðabæ.

 
 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi