Háspennulínur í upplandi Garðabæjar
Auglýsing um forkynningu á tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2004-2016
Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með forkynningu á tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar 2004-2016 samkvæmt skv. 1. mgr.17. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br.
Hápennulínur Landsnets í upplandi Garðabæjar, Búrfellslína 3, Sandskeiðslína 1 og Hamraneslínur 1 og 2.
Vegna áforma Landsnets um styrkingu á raforkuflutningskerfi um upplönd höfuðborgarsvæðisins hefur verið lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2004-2016.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
Breytingarsvæði 1 (ofan Húsfells):
• Búrfellslína 3, 400 kV. Ný lína frá Sandskeiði að Hamranesi.
• Sandskeiðslína 1, 400 kV. Ný lína frá Sandskeiði að Hrauntungu.
• Kolviðarhólslína 2, 220 kV. Á núverandi línu. Flutningsgeta núverandi línu verður aukin á kaflanum frá Sandskeiði að Hamranesi. Gert er ráð fyrir að möstur línunnar hækki um 2-3 m að jafnaði vegna þessara aukningar.
Breytingarsvæði 2 (Grunnuvötn,Vífilsstaðahlíð, Urriðakotshraun)
• Þegar Búrfellslína 3 og Kolviðarhólslína 2 eru komnar í rekstur er áformað að Hamraneslínur 1 og 2 verði fjarlægðar og eru þær því felldar út úr aðalskipulagi. Hnoðraholtslína mun þó standa áfram.
Fyrirhuguð framkvæmd vegna styrkingar á raforkuflutningskerfinu er nú í umhverfismatsferli á vegum Landsnets.
Að lokinni forkynningu verður tillagan lögð fyrir bæjarstjórn og óskað eftir heimild til kynningar á tillögunni í samræmi við 18. grein skipulags- og byggingarlaga.
Tillagan liggur frammi á bæjarskrifstofum Garðabæjar, Garðatorgi 7 og er einnig aðgengileg hér á vef Garðabæjar. Ennfremur skal bent á sérstakan verkefnisvef Landsnets vegna fyrirhugaðra framkvæmda: www.sudvesturlinur.is .
Sameiginleg kynning vegna tillagna á breytingum á aðalskipulagsáætlunum Garðabæjar, Reykjavíkurborgar, Mosfellsbæjar og Kópavogsbæjar, verður haldin með opnu húsi í Kríunesi við Elliðavatn sunnudaginn 7. júní 2009 klukkan 14-17. Þar verður frummatskýrsla Landsnets vegna umhverfismats fyrirhugaðra framkvæmda einnig til kynningar.
Arinbjörn Vilhjálmsson
skipulagsstjóri Garðabæjar