12.06.2009
Útvarp Garðabær- fm 103,7
Nokkrir ungir Garðbæingar ætla að reka útvarpsstöð í Garðabæ vikuna 15.-21. júní.
Hópurinn setti sig í samband við Garðabæ sem ákvað að koma að verkefninu með fjárstyrk og með því að opna salinn sem áður var sýningarrými Hönnunarsafn Íslands, við Garðatorg, fyrir útvarpsstarfseminni.
Viltu stýra útvarpsþætti?
Útvarpsstjórarnir bjóða Garðbæingum, ungum sem öldum, að vera með útvarpsþætti í Útvarpi Garðabæjar og vonast til að sú umræða sem þar fer fram veki athygli og stemningu í bæjarfélaginu.
Þeir sem hafa áhuga á að stýra þætti í Útvarpi Garðabæjar geta haft samband við Sigurbjörn Ingimundarson í síma 896-0566.
Tíðni sendinganna er 103,7.