Leit

Leitarvél
30.06.2009

Kjóavellir - hesthúsabyggð

Endurbirt auglýsing um skipulag í Kópavogi

Kjóavellir- Hesthúsabyggð, breytt deiliskipulag. 0901230

Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga, auglýsist tillaga að breyttu deiliskipulagi fyrir Kjóavelli - Hesthúsabyggð. Tillagan var samþykkt til auglýsingar í bæjarráði Kópavogs 22. janúar 2009 og í bæjarstjórn Garðabæjar 4. júní.

Almennt er vísað í gildandi deiliskipulag fyrir Kjóavelli – hesthúsabyggð samþykkt í bæjarstjórn Kópavogs 24. júní 2008 og í bæjarráði Garðabæjar 8. júlí 2008 og meðfylgjandi skipulagsskilmála dags. 26. júní 2008.

Breytingin nær til Kjóavallasvæðis innan lögsögu Kópavogsbæjar. Skipulagssvæðið afmarkast af fyrirhugaðri íbúðarbyggð Vatnsendahlíðar til austurs, hesthúsum í Heimsenda til norðurs, verslunar og þjónustuhverfi á bæjarmörkum Kópavogsbæjar og Garðabæjar til vesturs og Magnúsarlundi í suður.


Í tillögunni felst að byggingarreitir hesthúsa við Landsenda (K gata) eru færðir fjær götu og í þeirra stað eru hestagerði færð að götu. Byggingarreitir að Landsenda 22 og 25 eru sameinaðir og breikka í 12.5 metra. Reiðskemmu er komið fyrir milli hesthúsa nr. 23 og 24 og hæð byggingareits verður 5.5 metrar með veggjahæð sem nemur 3.5 metrum. Lóð við hesthús að Landsenda 15 stækkar til austurs.


Byggingareitum hesthúsa við Markaveg (A gata ) eru breytt og þeim snúið um 90 gráður og komið fyrir í norður hluta lóðar. Hestagerðum er komið fyrir meðfram Markavegi. Bílastæði og aðkoma breytist.


Byggingarreitur hesthúsa að Hamraenda 14 til 20 eru sameinaðir og breikka í 12.5 metra. Reiðskemmu er komið fyrir milli hesthúsa nr. 16 og 18 og hæð byggingareits verður 5.5 metrar með veggjahæð sem nemur 3.5 metrum. Byggingareitur og lóð hesthúss að Hamraenda 34 stækkar um 5 metra til suðurs. Húsanúmer breytast.
Tillagan er sett fram á uppdráttum í mkv. 1:2000 ásamt skýringarmyndum dags. 20. janúar 2009 og greinargerð.

 

Tillagan verður til sýnis á Bæjarskipulagi Garðabæjar, Garðatorgi 7 frá kl. 8:00 til 16:00 mánudaga til miðvikudaga, fimmtudaga frá 8:00 til 18:00 og á föstudögum frá 8:00 til 14:00 og Bæjarskipulagi Kópavogs, Fannborg 6, 2. hæð frá kl. 8:30 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum frá 8:00 til 15:00 frá 12. maí 2009 til 2. júlí 2009.

Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu Kópavogs, www.kopavogur.is og hér á heimasíðu Garðabæjar. Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist skriflega bæjarskipulagi Kópavogs eigi síðar en kl. 15:00 fimmtudaginn 16. júlí 2009. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.

Smári Smárason,
skipulagsstjóri Kópavogs.

Kjóavellir - hesthúsabyggð - nýtt deiliskipulag (pdf-skjal)

 
 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi