Leit

Leitarvél
29.07.2009

Tillögur að friðlýsingum


TILLÖGUR AÐ FRIÐLÝSINGUM Í GARÐABÆ
KYNNING


Umhverfisstofnun vinnur að undirbúningi friðlýsingar Skerjafjarðarsvæðisins í samræmi við náttúruverndaráætlun. Drög að tillögu til umhverfisráðherra um friðlýsingu innan bæjarmarka Garðabæjar, alls um 4, 27, km2 liggja nú fyrir. Einnig er unnið að friðlýsingu nyrsta hluta Búrfellshrauns, Gálgahrauns í Garðabæ, alls um 1, 08 km2

Í samvinnu við bæjarstjórn Garðabæjar eru drög að friðlýsingu ofangreindra svæða hér með auglýst til kynningar til 6. ágúst 2009. Þetta er í fyrsta sinn sem sú leið er farin að auglýsa opinberlega tillögur að friðlýsingum og væntir stofnunin þess að hún falli í góðan jarðveg.

Frestur til að skila inn athugasemdum og/eða ábendingum er til 6. ágúst. 2009. Skila skal athugasemdum til Umhverfisstofnunar og skulu þær vera skriflegar og undirritaðar.

Meðfylgjandi eru drög að tillögu til umhverfisráðherra að friðlýsingu Skerjafjarðarsvæðisins innan Garðabæjar og Gálgahrauns, ásamt kortum.

Drög að tillögu um friðlýsingu Skerjafjarðarsvæðisins innan Garðabæjar (pdf-skjal)
Kort af svæði - Skerjafjörður (pdf-skjal)

Drög að tillögu um friðlýsingu Gálgahrauns innan Garðabæjar (pdf-skjal)
Kort af svæði - Gálgahraun (pdf-skjal)

Auglýsing í Fréttablaðinu 1. júlí 2009 (ath búið er að leiðrétta kynningarfrest) (pdf-skjal)

 
 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi