09.07.2009
Flóamarkaður og listagallerí
Flóamarkaður og listagallerí verða haldin á Garðatorgi helgina 18.-19. júlí frá kl. 13-16 á vegum Skapandi sumarhóps Garðabæjar.
Öllum er velkomið að koma, selja og/eða kaupa. Borð verða á staðnum en panta þarf pláss í síma 692-0583 eða 616-2854.
Listaverk eftir nokkur ungmenni Garðabæjar ásamt fleirum verða svo til sýnis í gamla BYR húsnæðinu á meðan flóamarkaðinum stendur. Ef þú lumar á listaverkum máttu endilega hafa samband með fyrirvara og skapandi sumarhópurinn hengir þau upp /stillir upp.
Sjá frétt um skapandi sumarhóp hér á heimasíðunni.