Leit

Leitarvél
20.07.2009

3000 skátar á Garðatorgi

Skátar leggja af stað á Roverway-mót frá Garðatorgi 20. júí 2009

Yfir 3000 skátar lögðu af stað á alþjóðlegt skátamót frá Garðatorgi í morgun. Stór hluti hópsins gisti í Garðabæ sl. nótt.

Skátarnir taka þátt í mótinu Roverway 2009 sem haldið er á Íslandi dagana 20.-28. júlí. Þátttakendur í mótinu eru um 3.200 og koma frá 42 löndum. Skátafélagið Vífill í Garðabæ tók að sér að sjá stórum hluta hópsins fyrir gistingu aðfaranótt dagsins í dag (mánudags) og gistu um 2000 erlendir skátar í bænum þá nótt. Allir þátttakendur á mótinu mættu síðan á Garðatorg i morgun þar sem um 50 rútur sóttu þá og keyrðu að Háskóla Íslands þar sem mótið var sett.

Mótsgestum verður skipt í 53 sveitir sem fara á ólíka staði um land allt og munu vinna að þörfum samfélagsverkefnum hver á sínum stað, m.a. í Garðabæ þar sem skátar verða að störfum á morgun, þriðjudag.

Fleiri myndir frá Garðatorgi i morgun eru á myndasíðunni.

 
 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi