Leit

Leitarvél
21.07.2009

Skátar að störfum á Garðatorgi

Skátar frá Ítalíu og Spáni voru meðal þeirra sem unnu á Garðatorgi þriðjudaginn 21. júí

Fimmtíu skátar sem taka þátt í alþjóðlega skátamótinu Roverway 2009, unnu að samfélagsverkefni á Garðatorgi í morgun, undir stjórn starfsmanns frá garðykjudeild bæjarins. Verkefni þeirra fólst í að endurnýja torfið í lautinni á torginu en torfið sem var þar fyrir, var illa farið.

Annar fimmtíu skáta hópur verður að störfum á torginu eftir hádegi í dag, þriðjudag.

Á fimmtudaginn mun hópur skáta sem gistir í og við skátaskála Vífils í Heiðmörk, ganga til liðs við hópa í atvinnuátaki Garðabæjar og Skógræktarinnar og hjálpa til við að bera ofan í stíga í Vífilsstaðahlíð.

Skátarnir koma frá mörgum löndum en í morgun unnu m.a. skátar frá Spáni og Ítalíu í íslenskri sumarblíðu á Garðatorgi.

Skátar að störfum á Garðatorgi 21. júlí 2009

Skátar að störfum á Garðatorgi 21. júlí 2009

Skátar að störfum á Garðatorgi 21. júlí 2009

 

 

 

 
 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi