27.08.2009
Listasalur Garðabæjar
Auglýst er eftir umsóknum listamanna um sýningahald í Listasal Garðabæjar að Garðatorgi 7 (sýningarsalur á hæðinni fyrir ofan Bókasafnið). Um er að ræða sýningahald haust 2009 og vor og sumar 2010.
Ekki er tekið gjald fyrir afnotkun af salnum fyrir listsýningar en listamenn sjá sjálfir um yfirsetu og annan tilfallandi kostnað.
Starfsreglur um Listasal Garðabæjar og nánari upplýsingar eru birtar hér á heimasíðu Garðabæjar.
Umsóknarfrestur er til 8. september nk. - umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 11. september nk.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar