Háspennulínur Landnets
Auglýsing um kynningu á tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar 2004-2016
Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með kynningu á tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar 2004-2016 samkvæmt skv. 1.mgr.21.greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. og umhverfisskýrslu vegna tillögunnar.
Háspennulínur Landnets í upplandi Garðabæjar
Búrfellslína 3, Sandskeiðslína 1 og Hamraneslínur 1 og 2.Vegna áforma Landnets um styrkingu á raforkuflutningskerfi um upplönd höfuðborgarsvæðisins hefur verið lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2004-2016.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
Breytingarsvæði 1 (ofan Húsfells):
Búrfellslína 3, 400 kV. Ný lína frá Sandskeiði að Hamranesi.
Sandskeiðslína 1, 400 kV. Ný lína frá Sandskeiði að Hrauntungu.
Kolviðarhólslína 2, 220 kV. Á núverandi línu. Flutningsgeta núverandi línu verður aukin á kaflanum frá Sandskeiði að Hamarnesi. Gert er ráð fyrir að möstur línunnar hækki um 2-3 m að jafnaði vegna þessara aukningar.
Breytingarsvæði 2 (Grunnuvötn,Vífilstaðahlíð, Urriðakotshraun)
Þegar Búrfellslína 3 og Kolviðarhólslína 2 eru komnar í rekstur er áformað að Hamraneslína 1 og 2 verði fjarlægðar og eru þær því felldar út úr aðalskipulagi. Hnoðarholtslína mun þó standa áfram.
Fyrirhuguð framkvæmd vegna styrkingu á raforkuflutningskerfinu er nú í umhverfismatsferli á vegum Landnets.
Tillagan ásamt umhverfisskýrslu er í kynningu frá 6. september til 19. október 2009 og frestur til þess að skila inn athugasemdum er til mánudagsins 19. október.
Tillagan liggur frammi á bæjarskrifstofum Garðabæjar, Garðatorgi 7 og er ennfremur aðgengileg hér á vef Garðabæjar www.gardabaer.is . Ennfremur skal bent á sérstakan verkefnisvef Landsnet vegna fyrirhugaðra framkvæmda: www.sudvesturlinur.is
Arinbjörn Vilhjálmsson
skipulagsstjóri Garðabæjar