08.09.2009
Boltaskóli Stjörnunnar
Handknattleiksdeild Stjörnunnar býður í vetur upp á boltaskóla fyrir 4-5 ára börn (fædd 2004 og 2005). Áhersla verður lögð á alhliða hreyfingu með bolta, boltaþrautir og boltaleiki.
Íþróttakennarar verða Unnur B. Johnsen og Kristín Clausen. Námskeiðið verður á laugardögum kl. 11-12 í Mýrinni.
Námskeiðið hefst 19. september og því lýkur 5. desember.
Verð fyrir námskeiðið er 9.000 krónur.
Takmarkaður fjöldi.
Skráning fer fram í Mýrinni 9.-10. september kl. 17-19 og í gegnum netfangið: kristinjc@gmail.com.
Allar frekari upplýsingar eru veittar í símum:
565 1940 Stjörnuheimilið
844 2750 Unnur Johnsen
697 7362 Kristín Clausen