Leit

Leitarvél
25.09.2009

Ritun sögu Garðabæjar

Ritun sögu Garðabæjar

Eins og mörgum mun kunnugt vinnur Steinar J. Lúðvíksson rithöfundur nú að ritun sögu bæjar og byggðar Garðabæjar allt frá landnámsöld og fram til okkar daga.

Aðstoð við skrif um félagsstarf

Ætlunin er að gera félagsstarfi í Garðahreppi/Garðabæ góð skil í ritinu og fer nú sá þáttur vinnslunnar að hefjast.

Höfundur og ritnefnd verksins, en hana skipa Laufey Jóhannsdóttir, Ólafur G. Einarsson og Hilmar Ingólfsson, leita eftir aðstoð við vinnslu þessa þáttar ritverksins og óska eftir því að þau félög sem hafa starfað eða eru starfandi í bænum tilnefni aðila sem þekkir vel til sögu og starfs viðkomandi félags til þess að starfa með höfundinum við að finna upplýsingar og myndir um félagið.

Þeir sem geta aðstoðað eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við höfundinn:
Steinar J. Lúðvíksson
símar: 565 7955 og 897 4911
netfang: stjl@simnet.is

 

 
 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi