Leit

Leitarvél
28.09.2009

Fyrsti fundur ungmennaráðs

Ungmennaráð Garðabæjar ásamt Vilhjálmi Kára Haraldssyni þjónustustjóra og Gunnari Einarssyni bæjarstjóra

Fyrsti fundur ungmennaráðs Garðabæjar var haldinn fimmtudaginn 24. september á bæjarskrifstofum Garðabæjar. Samkvæmt nýlegum æskulýðslögum ber sveitarfélögum að hlutast til um að stofnuð verði ungmennaráð sem eiga meðal annars að vera sveitarstjórnum ráðgefandi um málefni ungs fólks í viðkomandi sveitarfélagi.

Í ungmennaráði Garðabæjar eru 7 ungmenni á aldrinum 13-18 ára úr Sjálandsskóla, Garðaskóla og Fjölbrautaskólanum í Garðabæ.

 

Þetta eru þau Alexandra Kristjánsdóttir nemendi í 9. bekk, Sandra Steinþórsdóttir nemandi í 8. bekk, Halldór Erik Jan Sverrisson nemandi í 9. bekk., Kristjana Björk Brynjarsdóttir nemandi í 10. bekk, Vigdís Víglundsdóttir nemandi í 10. bekk og Svanhvít Helga Magnúsdóttir og Stefán Snær Stefánsson fædd 1992, nemendur í FG.

 

Á fyrsta fundinum fengu ungmennin kynningu á hlutverki ungmennaráðsins, bæjarstjóri kynnti þeim Garðabæ og starfsemi hans og í lokin var farin skoðunarferð um bæjarskrifstofurnar.

 


 

 
 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi