14.10.2009
Haustvaka kvennakórsins
Fimmtudaginn 15. október 2009, kl. 20 í Kirkjuhvoli (safnaðarheimili Vídalínskirkju)
- Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur stjórnar haustvökunni af sinni alkunnu snilld
- Sólveig Birna Júlíusdóttir sellónemandi við Tónlistarskóla Garðabæjar spilar við undirleik Guðrúnar Dalíu Salómonsdóttur
- Laufey Jensdóttir myndlistarmaður og bæjarlistamaður Garðabæjar 2009 kynnir sig og verk sín
- Ármann Helgason klarinettuleikari skapar franska stemmningu
- Kvennakór Garðabæjar syngur íslensk og erlend haustlög
Kórstjóri: Ingibjörg Guðjónsdóttir
Píanóleikari: Sólveig Anna Jónsdóttir - Kaffi og léttar veitingar að hætti kórkvenna
Aðgangseyrir 1200 kr / 1000 kr fyrir lífeyrisþega
Að haustvökunni standa Kvennakór Garðabæjar og menningar- og safnanefnd Garðabæjar.
Sjá einnig heimasíðu Kvennakórsins, www.kvennakor.is