Flatir - deiliskipulag
Auglýsing um skipulagsmál í Garðabæ
Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með kynningu á breyttri tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi íbúðarbyggðar á Flötum í Garðabæ, samkvæmt 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.Flatir Garðabæ - Endurskoðun deiliskipulags, breytt tillaga
Deiliskipulag íbúðarhúsabyggðar á Flötum var samþykkt í júlí 1961 og í tímans rás hafa verið gerðar á því ýmsar breytingar. Í seinni tíð hefur verið ljóst að endurskoða þyrfti deiliskipulagið enda er það orðið þungt í vöfum og full ástæða til að laga að það að þörfum nútímans. Árið 2007 var tillaga að endurskoðuðu deiliskipulagi kynnt með formlegum hætti og bárust alls 12 athugasemdabréf frá 90 íbúum.
Í kjölfar athugasemdanna hafa nú verið gerðar breytingar á tillögunni og hefur bæjarstjórn ákveðið að kynna tillöguna að nýju.
Frá fyrri tillögu hafa eftirfarandi breytingar verið gerðar:
- Bil milli 1h húsa neðan við Móaflöt og við Tjarnarflöt verði 6 metrar (1+5)
- Deiliskipulag við Garðaflöt 16-18 verður óbreytt frá núgildandi skipulagi.
- Nákvæm lega vatnsæðar verði færð inn á uppdrátt.
- Að gert verði ráð fyrir hljóðvörnum meðfram Vífilstaðavegi í samræmi við tillögu Línuhönnunar í hljóðvistarskýrslu.
- Að byggingarreitir við Garðaflöt að norðanverðu verði stækkaðir um 4 metra að Vífilstaðavegi. Ekki verði unnt að veita leyfi fyrr en að áætlun um uppsetningu og gerð hljóðvarna liggi fyrir.
- Að öll einnar hæðar hús neðst við Smáraflöt og Lindarflöt verði skilgreind sem einnarhæðar með kjallara.
- Að hámarksnýtingarhlutfall 1 hæðar húsa verði 0,35.
- Að hámarksnýtingarhlutfall húsa með fleiri gólfum en einu verði 0,45 en hámarksflötur húss á lóð ekki meiri 35 %.
Tillagan, ásamt skýringarmyndum og hljóðvistarskýrslu, liggur frammi á bæjarskrifstofum Garðabæjar, Garðatorgi 7, frá 3. desember 2009 til og með 14. janúar 2010. Gögnin eru ennfremur aðgengileg hér á vef Garðabæjar. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til þess að skila inn athugasemdum rennur út fimmtudaginn 14. janúar 2010 kl.16.00. Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofur Garðabæjar og skulu þær vera skriflegar og undirritaðar. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar fyrir tilskilinn frest teljast samþykkir þeim.
Þeir sem vilja fá frekari upplýsingar og útskýringar á tillögunni skulu hafa samband við skipulagsstjóra á kynningartíma.
Arinbjörn Vilhjálmsson
Skipulagsstjóri Garðabæjar