Háspennulínur Landnets
Háspennulínur Landnets í upplandi Garðabæjar
Búrfellslína 3, Sandskeiðslina 1 og Hamraneslínur 1 og 2.
Vegna áforma Landnets um styrkingu á raforkuflutningskerfi um upplönd höfuðborgarsvæðisins hefur verið lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2004-2016.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
Breytingarsvæði 1 (ofan Húsfells):
• Búrfellslína 3, 400 kV. Ný lína frá Sandskeiði að Hamranesi.
• Sandskeiðslína 1, 400 kV. Ný lína frá Sandskeiði að Hrauntungu.
• Kolviðarhólslína 2, 220 kV. Á núverandi línu. Flutningsgeta núverandi línu verður aukin á kaflanum frá Sandskeiði að Hamarnesi. Gert er ráð fyrir að möstur línunnar hækki um 2-3 m að jafnaði vegna þessara aukningar.
Breytingarsvæði 2 (Grunnuvötn,Vífilstaðahlíð, Urriðakotshraun)
• Þegar Búrfellslína 3 og Kolviðarhólslína 2 eru komnar í rekstur er áformað að Hamraneslína 1 og 2 verði fjarlægðar og eru þær því felldar út út aðalskipulagi. Hnoðarholtslína mun þó standa áfram.
Fyrirhuguð framkvæmd vegna styrkingu á raforkuflutningskerfinu er nú í umhverfismatsferli á vegum Landnets.
Ennfremur eru kynntar lítilsháttar leiðréttingar frá upphaflegum aðalskipulagsuppdrætti.
Tillagan er sett fram á breyttum sveitarfélagsuppdrætti og þéttbýlisuppdrætti.
Tillagan ásamt umhverfisskýrslu er í kynningu frá 15. janúar til 26. febrúar 2010 og frestur til þess að skila inn athugasemdum er til föstudagsins 26.febrúar
Tillagan liggur frammi á bæjarskrifstofum Garðabæjar, Garðatorgi 7, og er ennfremur aðgengileg hér á vef Garðabæjar.
Ennfremur skal bent á sérstakan verkefnisvef Landsnet vegna fyrirhugaðra framkvæmda: www.sudvesturlinur.is
Arinbjörn Vilhjálmsson
skipulagsstjóri Garðabæjar