Listasalur Garðabæjar
Björg Atla opnaði málverkasýningu í Listasal Garðabæjar laugardaginn 13. febrúar 2010. Sýninguna nefnir hún Tilbrigði við stef.
Sýning Bjargar stendur til 28. febrúar og er opin alla daga frá klukkan 13-18.
Allir velkomnir, aðgangur er ókeypis.
Björg Atla Hugsað til Nangiala / 80x165 cm
Björg Atla útskrifaðist úr málaradeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1982. Hún sótti ýmis námskeið í Myndlistaskólanum í Reykjavík 1976-79 og kenndi olíumálun við sama skóla 1982-87.
Björg hefur verið með eigin vinnustofu síðan 1982. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar, síðast í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar 2004, og tekið þátt í samsýningum, þar á meðal tveimur sýningum myndlistamanna í Garðabæ 2009. Björg er félagi í FÍM, SÍM og Hópi listamanna í Garðabæ.
Í verkum sínum velur Björg að nota aðferð vatnslitatækninnar og leitast við að ná fram flæði, gagnsæi og tærleika. Hún er heilluð af glímunni við liti og litaandstæður í myndfletinum. Myndir hennar eru ekki málaðar eftir beinum fyrirmyndum, heldur tjá í þöglum tónum innri sýn. Hafið, jörðin og himinninn eru þó aflvaki tilfinninga úr sálarkirnu málarans.
Staðsetning:
Listasalur Garðabæjar er staðsettur að Garðatorgi 7, þar var áður sýningarsalur Hönnunarsafns Íslands. Aðalinngangur er austan megin við Garðatorg 7 (Heilsugæslumegin) en einnig er innangengt í salinn frá innitorginu (gengið upp hringstigann, salurinn er á hæðinni fyrir ofan Bókasafn Garðabæjar). Bílastæði eru bæði austan og vestan megin við Garðatorgið.