22.02.2010
Heilsuefling í Garðabæ
Í kjölfarið á Lífshlaupinu verður Heilsueflingardagur í Íþróttamiðstöðinni Ásgarði laugardaginn 27. febrúar frá kl. 10:30 – 14:00.
Tækifæri gefst á að kynna sér ýmsa þá möguleika sem í boði eru varðandi hreyfingu í Garðabæ. Einnig verða stutt fræðsluerindi í tengslum við hreyfingu og ýmislegt sem tengist áhættu lífstílssjúkdóma. Þá verður einnig boðið upp á ýmsar líkamsmælingar eins og t.d. blóðfitu- og blóðsykurmælingar. Frítt verður í sund meðan dagskrá stendur yfir.
Smellið á myndina til að fá auglýsingu í PDF-skjali.