Listasalur Garðabæjar
Auglýst er eftir umsóknum listamanna um sýningahald í Listasal Garðabæjar að Garðatorgi 7 (sýningarsalur á hæðinni fyrir ofan Bókasafnið). Um er að ræða sýningahald frá ágúst til og með desember 2010. Ekki er tekið gjald fyrir afnotkun af salnum fyrir listsýningar en listamenn sjá sjálfir um yfirsetu og annan tilfallandi kostnað.
Gert er ráð fyrir að hver sýning standi yfir 3 helgar í uþb 3 vikur.
Sjá starfsreglur og aðrar upplýsingar um salinn hér á heimasíðu Garðabæjar.
Umsóknarfrestur er framlengdur til og með 8. apríl nk.
Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.
Umsóknareyðublöð eru rafræn og hægt er að nálgast þau á íbúavefnum Mínum Garðabæ. Til að fá lykilorð að Mínum Garðabæ er farið á innskráningarsíðu hér.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
Nánari upplýsingar veitir Hulda Hauksdóttir upplýsingafulltrúi
s. 525 8500/ 525 8527 og netfang: hulda@gardabaer.is