Leit

Leitarvél

 

Listadagar barna og ungmenna 2010

Í lok apríl eða nánar tiltekið dagana 19. apríl – 1. maí nk. verða listadagar barna og ungmenna haldnir í fjórða sinn í Garðabæ.  

DAGSKRÁ LISTADAGA

Fréttir á heimasíðu:

3. maí Frábær Draumahátíð
30. apr Sýningar á Garðatorgi
30. apr Listalíf í skólum bæjarins
27. apr Stefnumót við myndlistamenn
26. apr Listadagaskemmtun á Garðatorgi
22. apr Listadagar barna og ungmenna

 

 

,,Leikandi list“

Þema listadaganna að þessu sinni er ,,leikandi list“ og má túlka það á ýmsa vegu.  Þemað tengist m.a. verkefni sem hófst sl. haust þegar myndmenntakennurum og leikskólakennurum í Garðabæ var boðið á námsstefnu um leikfangagerð og endurnýtingu efnis.  Á námstefnunni fjallaði einn fremsti sérfræðingur Indlands á sviði hefðbundinna leikfanga, Sudarshan Khanna prófessor, um leikfangagerð úr einföldum og endurnýttum efniviði. Í framhaldi af námsstefnunni var sett upp vinnusmiðja á Garðatorgi þar sem kennarar gátu komið með nemendur og búið til einföld leikföng.  Myndir af leikföngum sem börn í leik- og grunnskólum í Garðabæ og nemendur úr FG bjuggu til sl. haust prýða almanak Sorpu fyrir árið 2010. Almanakið var unnið í samstarfi Sorpu, Hönnunarsafns Íslands og Hafnarborgar, menningar- og listamiðstöðvar Hafnarfjarðar.

 

Listsköpun í skólum

Mikil gróska er í alls konar listsköpun í skólum bæjarins, þ.e. í leikskólum, grunnskólum, Tónlistarskóla Garðabæjar og Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Jafnframt fer fram skapandi starf í félagsmiðstöðinni Garðalundi og fjöldi ungra Garðbæinga stundar listsköpun á eigin vegum í Garðabæ eða annars staðar. Á listadögunum er ætlunin að reyna draga fram og bjóða til sýningar og flutnings fjölbreytileg verk eftir mismunandi aldurshópa.  Alls konar listir verða sýnilegar þar má nefna tónlist, dans, myndlist, hönnun, leiklist, bókmenntir, ljósmyndun og margt fleira.  Leikskólar bæjarins verða með opið hús laugardaginn 24. apríl og elstu börn leikskóla og yngstu börn grunnskóla fara í sameiginlega skrúðgöngu í upphafi listavikunnar.  Margar sýningar verða í gangi þessa daga má þar  nefna útskriftarsýningar nemenda úr fatahönnun og myndlist í FG.  Bókasafnið ætlar að vera með smásagnakeppni og leikfélagið Draumar hefur umsjón með skemmtilegri lokadagskrá laugardaginn 1. maí. Einnig er fyrirhugað samstarf við listamenn í bænum í tengslum við listadaga barna og ungmenna.

Upplýsingar um listadagana

Áhugasamir um listadagana geta haft samband við Huldu Hauksdóttur upplýsingafulltrúa á bæjarskrifstofunum í síma 525 8500 eða í netfangi hulda@gardabaer.is eða við Árdísi Olgeirsdóttur fræðslu- og kynningarfulltrúa list-verk og hönnunar í s. 525 8500 eða netfang ardisol@gardabaer.is.

 

 
 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi