Leit

Leitarvél

E- taflan

E taflan

síða 1- skoða 

síða 2 - skoða

 

Einkenni

Þreyta, hungur- og þorstatilfinning eykst, líkamshiti hækkar.

Gefið gaum að

Neytt í töfluformi, oft skrautlegar töflur í litum og í formi ýmisra mynda s.s. playboy kanínu. Ofvirkni í vímu, snöggt þunglyndi eftir vímu.

Hætta

Hætta á slæmum krampaflogum, truflanir á blóðþrýstingi og/eða æðakerfi. Hætta á varanlegum nýrnaskemmdum og heilablæðingum og ofsóknarkennd. Þar sem yfirleitt er mikið að aukaefnum í E töflum þá veit barnið ekkert hvað það hefur verið að taka inn, td rottueitur og þvottaefni

Hvað er til ráða

Ræða við barnið og taka stöðu barnsins heima, í skóla og í frítíma. Fara vel yfir hegðunarmunstur og þar sem að E taflan er yfirleitt partý dóp -  þá er mikilvægt að hafa eftirlit með skemmtanahaldi barnsins.

Taka eiturprufu af barninu - sem fást í apótekum. Erfitt getur verið að fá jákvætt sýni þar sem að barnið losar sig við efnið fljótt - yfirleitt á innan við einum sólarhring. Mikilvægt er að standa yfir barni þegar það pissar í prufuglasið vegna þess að það er auðvelt að skemma prufur þannig að ekkert sjáist.

Ef prufan er jákvæð þá á að hafa samband við unglingaráðgjafa hjá Fjölskyldusviði til að fá frekari ráðleggingar. Einnig er hægt að leita til unglingadeildar SÁÁ og sjálfstætt starfandi sérfræðinga sem vinna með vímuefnavanda barna.  

 

Forvarnir

 



Aukaval


Tungumál


Leturstærðir

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi